josi.klaki.net

Betra andrúmsloft
Hjá Kormáki og Skildi í gærkvöld var bara gott andrúmsloft. Þeir ákváðu að eitt kvöld hafi verið nóg til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í bili og á staðnum voru nokkur skilti sem á stóð "Reykingar Bannaðar". Ég sendi Kormáki eftirfarandi sms:

Allt reyklaust og fínt. Thakkir frá ánægdum vidskiptavini.

Svo kom reyndar Kormákur sjálfur seinna á staðinn og ég tók í höndina á honum og þakkaði fyrir. Ég held að það sé betra fyrir okkur reyklausa fólkið að nota jákvæð meðul til að sýna veitingamönnum að við viljum hafa hreint loft í kringum okkur. Það væri óskandi að allir reyklausir myndu sýna vertunum ánægju sína í verki, -við erum jú talsvert fleiri á landsvísu.

Kormákur og Skjöldur
Þegar reykingabannið gekk í garð síðasta sumar þá kvörtuðu veitingamennirnir Kormákur og Skjöldur mikið yfir því að þetta myndi þýða mikið tekjutap fyrir þá. Ég hef síðan þá reynt að styðja þá félaga með því að versla hjá Ölstofu Kormáks og Skjaldar, og mér sýnist fleiri hafa tekið það upp því það er oftast nóg að gera á Ölstofunni og oftast biðraðir þar fyrir utan um helgar.

En í gærkvöldi fannst mér ekki gaman þar því að staðurinn var orðinn reykmettaður eins og hann var fyrir bannið. Mér datt í hug að hringja því einfaldlega í vertinn og spyrja kurteislega hvort að ekki væri hægt að banna reykingar á staðnum fyrst að þær angri góða kúnna eins og mig.

Kormákur er ósköp ljúfur að ræða við í eigin persónu, hann var að koma af fundi þar sem hann var einmitt að ræða reykingamálin og segir að þetta leyfi fólks til að reykja sé sennilega bara tímabundið. Vertarnir eru ekki alveg á móti okkur greyjunum sem reykjum ekki og láta reykingar fara í taugarnar á okkur, heldur séu þeir að halda uppi mótmælum til að berjast fyrir réttindum þeirra sem þyrftu annars að norpa úti í kuldanum.

Ég ætla að kíkja á Ölstofuna í kvöld og athuga andrúmsloftið.

Símtal við heilbrigðiseftirlitið
Ég var rétt í þessu að hringja í heilbrigðiseftirlitið til að reyna að fá úr því skorið hver réttur okkar sem reykjum ekki sé. Þar var mér tjáð að reykingar á skemmtistöðum séu hreint og klárt lögbrot. Á Ölstofunni í gær var mér sagt að þeir væru að leyfa reykingar vegna þess hve óskýrt væri í raun hver væri að brjóta lögin, sá sem reykir eða vertinn. Heilbrigðiseftirlitið sagði að í raun væru það báðir sem væru að brjóta lög, en ábyrgðin er alltaf veitingamannsins.
Að lokum var mér bent á að best sé að skrá hjá sér hvar verið sé að brjóta lögin með því að leyfa reykingar og tilkynna það til Heilbrigðiseftirlits Reykjavíkur í síma 411-8500.
Ef að fólk lendir í því að verið er að brjóta á rétti þess með því að reykja í kringum það á skemmtistöðum, þá er hægt að bregðast svona við:

Biðja þann sem reykir að hætta.

Ef reykingamaðurinn hættir ekki, tala við starfsfólk á staðnum, og biðja það um að fá viðkomandi til að hætta.

Ef starfsfólkið vill ekki gæta réttar viðskiptavina, þá verður einfaldlega að skrá hvar verið er að brjóta lögin og tilkynna heilbrigðiseftirlitinu, eða jafnvel lögreglunni.

Það er spurning hvort ég láti reyna á þetta í kvöld.

Brotið á mannréttindum
Í gær fór ég eins og oft áður stuttan göngutúr um miðbæinn og kíkti á kaffihús. Allsstaðar var fólk að reykja. Eftir nýjustu útspil félags kráareiganda virðist allt vera farið í sama farið aftur. Ég hringdi í lögregluna í gær og spurði hvort ég gæti leitað réttar míns, og þar sögðust menn bara vera með "skemmtistaðaeftirlit í samstarfi við heilbrigðiseftirlitið" og að þeir væru að skoða þessi mál. Svo væri enginn að neyða mig til að vera inni á þessum stöðum.

Þessi rök, sem bæði umræddur lögreglumaður og margir reykingamenn beittu þegar reykingar voru löglega leyfðar á skemmtistöðum, að enginn neyði þá sem reykja ekki að vera á stöðum sem leyfa reykingar falla um sjálf sig þegar málið er kannað nánar. Síðastliðið vor gerði ég mjög óvísindalega könnun á stöðunni, og fann einungis eitt kaffihús sem bannaði reykingar, Mokka á Skólavörðustíg. Það var ekki einn einasti staður sem var opinn seint á kvöldin sem bannaði reykingar. Það er svo miklum vandkvæðum bundið hafa reyklausan skemmtistað að enginn treysti sér til þess. Og það að allsstaðar sé farið að reykja aftur sýnir okkur að jú, það er verið að neyða okkur sem reykjum ekki til að sitja undir reyknum.

Ég er sjálfur það frjálslyndur í skoðunum að mér finnst leiðinlegt að vera að skella fram endalausum boðum og bönnum, en í þessu máli gildir gamla frjálshyggjusetningin:

Frelsi þitt endar þar sem mitt byrjar -og öfugt.

Fólk má gera allskonar hluti við sjálft sig ef það skaðar ekki aðra. Ég sjálfur borða of mikið af ruslfæði, sturta í mig kaffi og drekk áfengi. En það að ég geri þessa hluti skerðir ekki lífsgæði annars fólks. Reykingar hinsvegar skerða lífsgæði þeirra sem eru nálægt reykingamanninum talsvert.

Reykingar nálægt mér erta öndunarfæri mín og augu, setja lykt í fötin mín og samkvæmt könnunum eykur líkur mínar á að fá krabbamein. Þessvegna verður reykingafólk að sætta sig við að reykja ekki þar sem reykurinn getur haft áhrif á aðra.

Réttur fólks til að vera í reyklausu umhverfi vegur þyngra heldur en rétturinn til að fá að reykja hvar og hvenær sem er.

Ég hlakka svo til
Ég veit ekki með aðra, en ég er farinn að hlakka alveg rosalega til þess að reykingar verði bannaðar á veitingastöðum. Ég fer nokkrm sinnum í viku á kaffihús og ef ég næ að þola reykinn geng ég út allur angandi af tóbaki.

Kunningjar mínir sem reykja hafa talað um þetta sem fasisma og valdníðslu og að skemmtistaðir eigi eftir að tapa fullt af peningum á þessu. Ég er það mikill frjálshyggjumaður að ég skil þau rök alveg en málið er að mér fokking sama. Þetta er búið að vera að angra mig í þau ca. 12-15 ár sem ég hef farið á veitingastaði og núna er bara komið að okkur sem reykjum ekki.

Reykingamenn, verið úti.

Sirkus
Jahérna. Sirkus er orðin rugluð, og rétt í þessu missti ég þessvegna af Ásgeiri Kolbeins að taka viðtal við Geir Ólafs.

Ætli afruglararnir fari ekki að renna út núna.

Til Akureyris
Ég er á Akureyri í vinnuferð. Síðan hvenær er komin Húsasmiðja og fokking byggð lengst, lengst, lengst, lengst fyrir utan bæinn!

Þegar ég bjó hérna þá var Glerárþorp okkar Grafarvogsholtsúthverfapleis. Ég ætti kannski að sætta mig við að vera Reykjavíkurborgarbarn þar sem ég hef átt lögheimili fyrir sunnan í 25 ár. Fjandinn hafi það.

Vistaskipti
Jæja. Ég er kominn með fasta vinnu eftir nokkra ára freelance hark (stundum meira free heldur en lance, haha). Ég er sumsé farinn að vinna hjá fyrirtækinu Filmus.

Ef smellt er þar á "the company" má sjá að ég er víst orðinn fastur þar.

Ég var mjög ánægður að geta labbað í vinnuna en skömmu eftir að ég byrjaði fékk ég að vita að verkefni sem ég er að fara að vinna í næstu 3 mánuði muni vera unnið inni í Vatnagörðum. Fjandinn. Best að draga fram vespuna...

ps. TIl hamingju Gríma og Ásgeir með strákinn sem fæddist í dag!

Yfirlýsing
10 bita óþjappað Hi-def er alveg málið. Ekkert fleira.

Skemmtilegt orðalag
Finnst einhverjum öðrum jafnfyndið og mér að Jónína Bjartmarz tali um að "finna farveg" á málum Náttúrugripastofnunar? Þar var rosalegur vatnsskaði fyrir skömmu, ætli framsóknarfólk vilji leyfa safngripunum að skolast út í hafsauga með skilvirkari hætti?

Rupert Murdoch að kaupa 365?
Ég fékk smá sjokk þegar ég las þessa frétt. Sem betur fer er þetta víst annað 365 Media Group.

Maður fer samt að spá i því hvort að spekingarnir sem fundu upp á nafninu 365 á íslenska fyrirtækið kunni ekki að googla "365 media" eða hvort þeir hafi bara googlað flott nafn á fjölmiðlafyrirtæki og endað á 365.

Að gefnu tilefni
Þegar ég var ráðinn til starfa hjá RÚV á sínum tíma, þá hafði staðan ekki verið auglýst í fjölmiðlum. Merkilegt nokk hefur samt enginn nokkurntímann fett fingur út í það.

Veit einhver
...hvernig miðasala á jarðarförina hans Milton Friedman gengur?

Helvítis dópistar og þjófar
Í morgun vaknaði ég við símtal frá lögreglunni. Þeir höfðu farið inn til einhvers sprautufíkils á Hverfisgötunni og séð þar glænýjan skenk frá Ikea og farið að spá í hvernig hann hafði fengið hann, og eftir smáleit fannst kvittun, í mínu nafni. Þarna var sumsé þjófurinn sem rændi jakkanum mínum og veskinu um daginn.

Í ljós kemur að þrátt fyrir að ég tékkaði á stöðunni á kortunum um leið og ég fattaði að einhver hafði farið inn og stolið jakkanum, þá komu færslurnar ekki strax fram. Mannandskotinn hafði tekið út af kreditkortinu mínu fyrir 58.150 kr.

Ekki hefur löggan enn fundið jakkann, en ég vona að Visa endurgreiði mér peningana. Það er í vinnslu hjá Visa eins og er.

Ég hef síðan fengið að heyra að þetta sé mjög vafasamur karakter sem rændi mig, búinn að vera vitni að tveimur dóptengdum dauðsföllum og allt. Spurning hvernig það mun ganga að rukka hann um jakkann minn, það gæti verið að ég myndi þurfa að höfða einkamál gagnvart honum til þess að fá andvirðið...

En það má samt skemmta sér yfir þessu, við skulum skoða til gamans hvað hann hefur gert með kortinu mínu:

Fyrst er það Strætó BS, 6.200 kr. Ætli hann hafi verið að kaupa sér grænt kort? Eða tvö?

Svo er það Bónusvídeó, 6.540 kr. Alltaf gott að borga leiguskuldirnar, og jafnvel kaupa sér kók og popp.

Næst kom Olís, Mjódd. Heilar 7.115 kr. Skyldi hann hafa verið að kaupa bensín? Eða var hann bara að nota græna kortið? E.t.v. var hann að kaupa lím til að sniffa?

Svo liggur leiðin aftur niður í bæ, í 10-11 Barónsstíg. Þar verslar hann nauðsynjar til heimilisins fyrir 5.804 kr. Örugglega speltbrauð og heilsufæði.

Þá kemur að gleðinni, 12.541 kr. í Vínbúðinni Holtagörðum. Kannski fór þetta allt í Créme de Menthe flöskur?

Og svo fer hann hinum megin við vegginn til Ikea og kaupir skenkinn fína á 19.950 kr. Örugglega verið skenkur sem heitir eitthvað eins og Uddevalla.

Starfsfólk þessara verslana ætti að taka betur eftir.

Kominn heim, jakka stolið
Fyrir viku fór ég til Barcelona. Þessvegna hefur enginn getað náð í mig, og þessvegna fór ég. Það var mjög fínt að sitja og éta Tapas, verandi utan þjónustusvæðis. Grey vinnurnar mínar sem náðu ekki í mig...

En annars lenti ég í því fyrir tveimur vikum síðan að ég var að vinna nálægt Hlemmi (hjá Filmus á Grettisgötunni) og um kvöldmatarleytið hefur einhver helvítis róninn komið inn og stolið fína leðurjakkanum mínum með vespumerkjunum, með veskinu með ökuskírteininu og debet/kreditkorti. Ef þið sjáið einhvern í svörtum leðurjakka með gulu vespumerki á hægri ermi, vængjuðu vespumerki á bakinu og bláu og hvítu vespumerki á vinstri ermi, þá vinsamlega lemjið viðkomandi og hringið í lögregluna og látið handtaka. Grrr...