19. júní 2006

Þrítugur

josi20.jpg
Greinarhöfundur um tvítugt.
Í gær varð ég þrítugur. Ég hélt upp á þetta um helgina, að kvöldi 17. júní hélt ég upp á afmælið með vinapakkinu mínu á Rósenberg. Krakkarnir slógu saman í iPod ostakörfu handa mér. Ég á skemmtilega vini! Nú get ég farið á klóið og haldið áfram að hlusta á tónlist í leiðinni, alveg eins og eftir að ég fékk vasadiskó í jólagjöf 1985 og gat farið um allt og hlustað á Bon Jovi kassettuna mína -a.m.k. þar til batteríin fóru að klárast og allt varð mjööööög hæææææægt. Ef ég svara ekki fólki næstu vikur, athugið þá fyrst hvort ég sé með hvít heyrnartól í eyrunum ;-)
Ingvar Valgeirs hringdi og óskaði mér til hamingju og sagðist hafa reddað spes gjöf. Hann bað mig um að líta út um gluggann, hann hefði reddað sviði og nokkrum poppurum til að taka lagið mér til heiðurs. Flott gjöf.
Hraun! léku snilldarlega fyrir fólk þarna og ég fékk að taka lagið með þeim, tók Rhinestone Cowboy eftir Glenn Campbell við góðan orðstír og Forever Young eftir Alphaville við, ja, ekki alveg jafn góðan orðstír. Þegar Forever Young var hálfnað brutust út heljarslagsmál fyrir utan gluggann, og einhver var kýldur niður og sparkað í liggjandi. Ætli ég reyni ekki að vanda mig betur við sönginn næst...

Í gær var svo fjölskylduboðið heima hjá pabba og mömmu. Þar gaf fjölskyldan mér örlítið af útivistardóti sem á eftir að virka vel í væntanlegri Hornstrandaferð sem Bragi er að skipuleggja. Systir mín og mágur gáfu mér líka Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason. Ég las hana alla í gærkvöldi. Og þar er eftirfarandi klausa frá 1918:

Danmörk tilkynnir erlendum ríkjum að hún hafi samkvæmt efni þessara sambandslaga viðurkennt Ísland fullvalda ríki, og tilkynnir jafnframt, að Ísland lýsi yfir ævarandi hlutleysi sínu og að það hafi engan gunnfána.

Þegar ég las þetta varð mér hugsað til embættisverka síðasta og þarsíðasta forsætisráðherra og ég táraðist. Ég hlýt að vera að meyrna í ellinni.

14. júní 2006

Ég er að verða þrítugur

18. júní verð ég þrítugur.

Fokk. Sjitt. Andskotinn. Ég er að verða gamall.


Ég gafst upp á að finna eitthvað frumlegt að gera á afmælinu svo að ég ætla bara að vera á Rósenberg að kvöldi 17. júní þar sem Hraun! verða að spila. Allir sem vilja samhryggjast með mér eru velkomnir.

Ætli ég verði ekki á staðnum frá ca. kl. 21:00, svo hefst ball með strákunum seinna um kvöldið.

11. júní 2006

Dramatískt SMS

Rétt í þessu var ég að fá eftirfarandi skilaboð:


Ertu ekki ad fatta hintinn, hann vill ekkert med thig hafa! Thu synir honum enga virdingu, veistu hvad virding er i sambandi? Nei greinilega ekki ! Gaui a skilid almennilega stelpu sem synir honum virdingu og er ekki ad hanga med fyrrverandi medan hun er med honum! Thu att ekki skilid gaua fyrir 5kall, skriddu bara aftur til ola, lytur ut fyrir ad hann se sa eini sem vill hafa eitthvad med thig ad gera .. Og ef thetta var of flokid fyrir thig, tha skal eg audvelda ther thetta: T H E T T A E R B U I D!

Mér dettur helst í hug að þetta tengist þessum smákrökkum sem hringja í mig í hverri viku og biðja um Kamillu.

29. maí 2006

Ég var að taka færeyskar auglýsingar

Um daginn fór ég til Kaupmannahafnar og London til að taka upp auglýsingar fyrir Atlantic Airways, færeyska flugfélagið. Stjörnurnar í auglýsingunum voru færeysku grínararnir Pipar og Salt. Þetta var mikið ævintýri, við lentum í mótmælum á Trafalgar Square og létum eins og vitleysingar á hinum ýmsustu stöðum.
Ingi R. vinnufélagi minn sem kom mér í þetta verkefni tók líka auglýsingar með þeim á Íslandi.

Afraksturinn má sjá á síðu flugfélagsins. (1, 2)

29. maí 2006

Íslensk kosning

Til er hugtakið rússnesk kosning, sem á við að aðeins einn aðili sé í framboði og sé þessvegna sjálfkjörinn, eins og gerðist einatt með kommúnistaflokkinn í Sovétríkjunum sálugu.

Ég legg til að við förum að nota hugtakið Íslensk kosning. Það myndi vera notað yfir þá aðstöðu þegar smáflokkur lendir í oddaaðstöðu og getur þessvegna ráðið öllu.

24. maí 2006

Það er gott að búa á Tatooine

2. maí 2006

Brögð í tafli

Fade in:
Inni. Veitingastaðurinn Sirkus. Bjart sumarkvöld, 15. júlí 2004.

Við erum stödd á efri hæð trendy skemmtistaðar í miðborg Reykjavíkur. Við plakat merkt "Tom Selleck Competition" má sjá fríðan flokk manna sem allir eru með myndarleg yfirvaraskegg. Eitt miðlungsyfirskeggið tilheyrir JÓSA, 28 ára gömlum kvikmyndagerðarmanni sem er óvenju látlaust klæddur miðað við hin tískutröllin sem skarta glæsilegum skeggvexti. Frá stigaopi sem liggur niður á næstu hæð má heyra mikil fagnaðarlæti.

Jósi:
(V.O.)
Úff, ég trúi því varla að ég hafi látið verða af þessu. Þessi keppni er kannski ekki alveg málið fyrir mig. Þó að yfirvaraskeggið sé orðið myndarlegt þá er ég ekki einu sinni með stærsta skeggið hérna! Og mér finnst eins og allir hinir þekkist og hafi haft samráð um að klæða sig eftir nýjustu straumum og stefnum frá Spútnik. Ég er óttalega utanveltu hérna.

Annar keppandi, Jói Gunni, ungur drengur með myndarlegt yfirvaraskegg og barta, klæddur í netabol og með myndarleg sólgleraugu, stendur upp og gengur niður tröppurnar. Af neðri hæðinni má heyra gríðarleg fagnaðarlæti. Jósi fer að svitna og lítur út fyrir að vera mjög stressaður. Hann lokar augunum.

Fade to black.

Við heyrum þungan andardrátt Jósa ásamt hjartslætti. Eftir nokkra stund af því heyrist rödd.

Rödd:
Jæja Jóhannes, nú er komið að þér...
Fade in:

Jósi stendur á stigapallinum og horfir niður. Hann gengur niður eins og í leiðslu og horfir yfir troðfulla neðri hæðina. Stór hópur ljósmyndara myndar hann í gríð og erg. Stjarfur af hræðslu gengur Jósi niður og þiggur bjórglas sem bíður eftir honum á barnum

Jósi:
(V.O.)
Það eru allir að horfa á mig. Það eru allir að horfa á mig. Það eru allir að horfa á mig! Afhverju í andskotanum datt mér í hug að taka þátt í þessu?

Eftir að hafa staðið þarna vandræðalega og horft yfir áhorfendaskarann í smástund gengur Jósi upp stigann aftur.

Dissolve to:

Úti. Garður á bak við skemmtistaðinn Sirkus. Síðar sama kvöld.

Jósi og hinir keppendurnir í yfirvaraskeggkeppninni standa í einu horninu og eru í hópmyndatöku. Hinum megin í garðinum situr dómnefndin, þau Sverrir Stormsker, Rósa Ingólfsdóttir og Skjöldur Sigurjónsson og ráða ráðum sínum. Eftir að ljósmyndarinn er búinn að mynda strákana fer Jósi út úr hópnum og virðir fyrir sér dómnefndina.

Jósi:
(V.O.)
Úff, þau munu örugglega ekki setja mig í neitt verðlaunasæti, ég fraus alveg þegar ég var að sýna mig í keppninni. Hinir keppendurnir voru miklu líflegri. Einn fór meira að segja úr buxunum! Ég þyrfti að gera eitthvað í þessu.

Jósi fær sér gúlsopa af bjór, snýr upp á endana á yfirvaraskegginu og gengur til dómnefndarinnar.

Jósi:
(talar ósköp vandræðalega)
Sæl, þið munið eftir mér frá því áðan er það ekki, he-he, hérna, mér fannst ég ekki alveg ná að sýna af mér minn besta þokka í keppninni svo ég ákvað að reyna að klóra í bakkann með því að tala við ykkur og hérna...

Jósi nær í þúsundkrónaseðil úr vasa sínum.

Jósi:
(frh.)
...svo mér datt í hug að biðja ykkur um að hugsa vel til mín, og Sverrir, þú gæti ef til vill talað mínu máli hérna í dómnefndinni?

Jósi setur þúsundkrónaseðilinn í jakkavasa Sverris Stormsker sem hreyfir engum mótmælum við. Dómnefndin öll hlær að þessu. Jósi kveður þau og gengur skælbrosandi í burtu.

Dissolve to:
Inni. Efri hæð Sirkuss. Enn síðar sama kvöld.

Keppendurnir eru allir saman komnir. Andrúmsloftið er rafmagnað, allir sitja í spenntir og bíða. Af neðri hæðinni má heyra í kynni.

Rödd kynnis:
...og dómnefndin hefur lokið starfi sínu. Og í þriðja sæti er: Jóhannes Tryggvason!

Jósi stendur skælbrosandi upp og fer niður og veifar fjöldanum. Hann tekur við verðlaunaskjali sem hann sýnir sigri hrósandi. Á bak við hann fær annar keppandi verðlaun fyrir annað sæti.

Jósi:
(V.O.)
Sko! Ég náði verðlaunasæti í fegurðarsamkeppni! Að vísu með því að múta dómnefndinni, en verðlaunasæti engu að síður!

Niður stigann kemur sigurvegari keppninnar. Áhorfendur tryllast af fögnuði.

Fade out.