100
Þetta er hundraðasta færslan á blogginu mínu. Á þessu rétt tæpa eina og hálfa ári sem ég hef verið að blogga hefur komið frá mér ný færsla að meðaltali á fimm daga fresti. Sumir eru kannski öflugri í að skrifa en ég, en ég held að ég setji gæði yfir magn og skrifi ekki mikið um hluti sem skipta ekki máli.... ...en þessi færsla sem ég er að skrifa núna er í raun alger froða og skiptir engu máli! Hjálp! Ég er ósamkvæmur sjálfum mér! Það hlýtur að vera það versta sem gæti komið fyrir svona besserwisser eins og mig...