Afhverju reyndiru ekki?
fade in
Inni. Kjallaraherbergi Jósa. Kvöld, sumarið 1999.
JÓSI, gjafvaxta einhleypingur situr og horfir á sjónvarpið. Síminn hans hringir og hann svarar. Í símanum er ÓLI, vinur Jósa og vinnufélagi.
Jósi:
Halló
Óli:
Hæ! Ertu að gera eitthvað sérstakt?
Jósi:
Bara að glápa á vídeó...
Óli:
Ég er á ferðinni með stelpu sem ég þekki og við vissum ekki hvað við áttum að gera við okkur. Eigum við ekki bara að koma í heimsókn?
Jósi:
Jú, jú.
Óli:
Við komum þá bara.
Jósi leggur á og andvarpar.
Jósi:
Þetta lyktar svolítið af því að Óli sé að reyna að koma mér og þessari stelpu saman.
Inni. Kjallarherbergi Jósa. Skömmu síðar.
Það er barið á dyr og Jósi fer og opnar. Inn gengur Óli, kraftalegur vinur Jósa og VINKONA Óla. Andlit vinkonunnar er í rúst. Á því eru stórar umbúðir sem hylja þrútið nef hennar. Undan umbúðunum sést glitta í stóran marblett sem hefur breiðst út að augunum svo að hún er með tvö myndarleg glóðaraugu. Jósi rekur upp stór augu og starir á útganginn á stelpunni.
Jósi:
(vandræðalega)
Sæl. Ég heiti Jósi. Hérna, hvað kom eiginlega fyrir andlitið á þér?
Vinkona:
(hress þrátt fyrir útlitið)
Æ, ég var í aðgerð til að láta laga nefið á mér svo ég gæti andað betur.
Jósi, Óli og vinkonan setjast og fara að horfa á sjónvarpið. Óli gætir þess að Jósi og vinkonan sitji við hliðina á hvort öðru. Jósi lítur alltaf öðru hvoru á nefið á vinkonunni en þegar hún tekur eftir því þá passar hann sig að horfa frekar á sjónvarpið.
Inni. Kaffihús. Kvöld, næstu helgi.
Jósi og Óli sitja og drekka bjór.
Óli:
(liggur mikið niðri fyrir)
Jósi, afhverju reyndiru ekki við þessa konu?
Jósi:
Það er nú það. Hún var svosem hress og skemmtileg, það var bara eitthvað ekki alveg að smella...
Inni. Heimili Jósa. Nokkrum árum seinna.
Jósi situr í tilvistarkreppu og nuddar á sér nefið.
Jósi:
Hvernig ætli hún hafi litið út þegar umbúðirnar voru teknar af og henni batnaði?
Jósi horfir út um gluggann og andvarpar.
fade out