← Eldri
(Kormákur og Skjöldur)
Heim
2. febrúar 2008

Betra andrúmsloft

Hjá Kormáki og Skildi í gærkvöld var bara gott andrúmsloft. Þeir ákváðu að eitt kvöld hafi verið nóg til að koma sjónarmiðum sínum á framfæri í bili og á staðnum voru nokkur skilti sem á stóð "Reykingar Bannaðar". Ég sendi Kormáki eftirfarandi sms:


Allt reyklaust og fínt. Thakkir frá ánægdum vidskiptavini.



Svo kom reyndar Kormákur sjálfur seinna á staðinn og ég tók í höndina á honum og þakkaði fyrir. Ég held að það sé betra fyrir okkur reyklausa fólkið að nota jákvæð meðul til að sýna veitingamönnum að við viljum hafa hreint loft í kringum okkur. Það væri óskandi að allir reyklausir myndu sýna vertunum ánægju sína í verki, -við erum jú talsvert fleiri á landsvísu.

1 ummæli

Sælir,
Smá útúrdúr frá pistlinum að ofan, en ertu búinn að prófa camcorder'inn frá Sony, HVR-Z1E?

Gísli skrifaði kl. 08:15, 23 febrúar, 2008

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)