20. febrúar 2003

Bless Blogger!

Ég er loks búinn að gefast upp á Blogger og búinn að færa þessa dagbók yfir á Movable Type.
Blogger hefur alla tíð strítt mér með því að eldri-færslur síðan hefur bara ekki virkað (þannig að ég þurfti að hafa allar færslurnar á sömu síðu sem gerði kommentakerfið mitt alveg skelfilega svifaseint) og svo er pirrandi að þurfa að tengjast tölvu í útlöndum til að bæta við færslu á íslenska síðu. Svo hrynur Bloggerserverinn reglulega!
MT er að mínu mati bæði betra en um leið flóknara kerfi. Það var lítið mál að færa gögnin úr Blogger yfir í MT, en aðeins meira maus að setja upp útlitið á síðunni. Þegar þetta er skrifað er þeirri vinnu í raun ekki lokið en þetta virkar svo ég ætla að setja síðuna í loftið.
Njótið nýrrar og betri síðu!

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)