7. febrúar 2002

Bömmer!

Í dag bættist ég í hóp þeirra fjölmörgu sem Skjáreinn hefur sagt upp síðastliðna viku (að vísu er ég verktaki svo að ég fékk bara: "það verða engin verkefni fyrir þig á næstunni"). Ég vil nota tækifærið og benda fólki á linkinn á CV-ið mitt hér á síðunni, endilega bjóðið mér vinnu, ég er ekki stoltur, ég skal gera hvað sem er nema koma nakinn fram osfrv.
En í alvöru þá er staðan í kvikmyndagerð á Íslandi helvíti slæm. Allar sjónvarpsstöðvarnar eru að draga saman seglin, og auglýsingamarkaðurinn sem hefur borgað salt í graut margra kvikmyndagerðarmanna er að þorna upp. Sem dæmi má nefna að fyrir tveimur vikum voru í Reykjavík eitthvað eins og 11 auglýsingastofur undir merki SÍA með um 300 starfsmenn, núna er þetta komið niður í 6 stofur með 210 starfsmenn (þessar tölur eru ekki alveg öruggar, þetta er bara eitthvað sem ég hef heyrt, ef einhver sem þetta les veit betur þá má viðkomandi endilega senda mér póst).
Ætli það séu einhverjir skurðir einhversstaðar fyrir mig að grafa?

ps. Núna nokkrum mánuðum eftir að þetta var skrifað þá fæ ég öðru hvoru verkefni hjá SkjáEinum svo að ég vinn að meðaltali svona 4-5 daga í mánuði þar. En það er ekkert fast.

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)