Dýr myndi Hafliði allur
Ég labbaði í dag framhjá þeim góða veitingastað Prikinu og sá ansi merkileg skilti á gangstéttinni og veggnum. Þar er verið að auglýsa afmælistilboð Priksins á bjór (sem var 250 kall fyrir flösku af Viking með sérstökum Priksmiða) en núna er Priksbjórinn kominn á krana. Það sem var merkilegt við þetta skilti var að á því stóð bæði á íslensku og ensku:
Ef hugarreikningurinn bregst mér ekki þá þýðir þetta að lítraverðið er 6250 kr! Stór bjór á 3125 kr!
Merkilegt tilboð það. Ég vona bara að þetta sé eitthvað mjög djúpt aprílgabb hjá þeim...