19. júlí 2002

Drama

Fade in

Inni. Gaukur á Stöng. Kvöld.

KONA á óræðum aldri, greinilega lifuð, kemur og sest hjá JÓSA, 26 ára gömlum kvikmyndagerðarmanni sem situr hjá nokkrum VINUM sínum og fylgist með tónleikum.

KONA
Þetta er skemmtileg tónlist. Minnir mig á það þegar ég fór á tónleika með EGÓ í gamla daga. Manstu eftir EGÓ?
JÓSI:
Ha? Nei, en ég hef séð upptökur með þeim...
KONA:
Þeir voru frábærir. Annars eru voðalega fáir hérna inni, það voru miklu fleiri hérna um daginn þegar ég kom hingað með dóttur minni.

VINUR JÓSA beygir sig að honum og sýnir með handapati að JÓSI ætti að fara með konunni heim og sofa hjá henni. JÓSI hristir hausinn.

JÓSI:
(V.O.)
Úff, strákarnir munu ábyggilega gera grín að mér fyrir þetta, en konan er næstum nógu gömul til að vera móðir mín. Svo var hún hérna djammandi með dóttur sinni!

JÓSI stendur upp og felur sig inni á klósetti.

fade out.
Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)