25. desember 2003

Drunginn í desember

Inni. Heimili Jósa. Um hádegisbil að aðfangadegi 2003.

JÓSI, ofvaxið jólabarn, er nývaknaður og fer í náttfötunum fram í stofu til að pakka niður jólagjöfum. Hann lítur út um gluggann og sér nýfallna mjöllina og heyrir fagran fuglasönginn inn um gluggann. Hann tekur sér stöðu við stofuborðið með gjafir, gjafapappír og borða sér við hlið. Á borði er bolli með heitu súkkulaði og úr græjunum heyrast jólalög.

Jósi:
Jæja, en hvað það er þægilegt að vera svona tiltölulega snemma á ferðinni. Venjulega er ég að alveg til klukkan sex en núna er svo lítið eftir, bara að pakka inn þessum gjöfum sem ég keypti seint í gærkvöldi. Og stemningin er svona yndisleg hérna, en hvað lífið er æðislegt!
Hann tekur sér skæri og límband í hönd.
Jósi:
Jæja, best að byrja á þessu. Hérna eru gjafirnar sem ég þarf að senda bróðurfjölskyldu minni í Grafarvogi, gjöfin hans Kobba bróður, Tryggva bróðursonar og Fríðu mágkonu. Eða hvað? Hvar er gjöfin hennar Fríðu?

Jósi stendur upp og byrjar að leita. Hann snýr við öllu í íbúðinni og finnur ekkert. Svitinn byrjar að spretta fram á enni hans.

Jósi:
Andskotinn! Helvítis! Djöfulsins! Mér fannst eitthvað svo sætt að vera að kaupa gjafir að kvöldi Þorláksmessu að ég hélt á það mörgum pokum og fór á það marga staði að gjöfin hennar Fríðu hefur týnst einhversstaðar. Ég kom við á kaffihúsi og tók leigubíl heim. Einhversstaðar þar hefur hún glatast.

CUT TO:

Inni. Verslunarmiðstöð nálægt heimili Jósa. Tíu mínútum síðar

Jósi, stressaður ungur maður, kemur hlaupandi inn. Hann er í ósamstæðum sokkum, með hárið út í loftið og í krumpaðri peysu. Hann stekkur upp rúllustigann og inn í stórvörumarkað.

Jósi:
(V.O.)
Ha! Náði inn nokkrum mínutum áður en þessi fokking búð lokar. Þá er bara að finna einhverja helvítis gjöf. Upphaflega gjöfin sem ég keypti er uppseld. Hmmm... hvað ætli Fríða vilji fá annað? Idol spilið? Nico með Steven Seagal á DVD? Tónleikaupptaka með Justin Timberlake? Hugsaðu. HUGSAÐU!

fade out.

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)