Et tu, Már
Fyrir tæpum tveimur árum byrjaði Már að jagast í mér með tækni Catos og endaði öll samskipti sín við mig með orðunum: "og farðu svo að fá þér vefleiðara". Loks gafst ég upp og blogga núna tiltölulega reglulega en Már er hættur(!) að blogga. Svo kom reiðarslagið í Mogganum í dag: Grein um blog með flennistórri mynd af Má og skrifað um hann "...en hann er manna fróðastur um þróun bloggsins".
Það er náttúrulega bara skandall að hann sé í forsvari fyrir hóp sem hann er búinn að yfirgefa. Mín kenning er sú að hann þori ekki að halda úti eigin vefsíðu vegna þess að hann vinnur við að bæta vefi hjá öðrum og geti ekki þolað gagnrýni á eigin vef. Ég skora á Má að endurvekja mar.anomy.net og hvet alla sem þetta lesa að skrifa ummæli við þessa færslu ef þeir eru sammála.