28. apríl 2004

Fimmtudagar á hverjum degi

Það er merkileg tilviljun að loksins taka stjórnarflokkarnir upp umræðu um að afnema afnotagjöld RÚV á sama tíma og þeir leggja fram frumvarp sem neitar fyrirtækjum (og opinberum stofnunum) með markaðsráðandi stöðu að hafa útvarpsleyfi.
Afnotagjöld RÚV gera það að verkum að sú blessaða stofnun hefur óumdeilanlega markaðsráðandi stöðu á sjónvarps- og útvarpsmarkaði. Ef að nýju útvarpslögin verða samþykkt áður en hreyfing verður í afnotagjaldamálum þá er ég að pæla í að kæra RÚV og sjá hvort ég geti fengið útvarpsleyfi þess afturkallað. Þá verða fimmtudagar á hverjum degi.

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)