Flokkadrættir
Það er merkilegt að rétt eins og þegar Bandaríkjamenn sem mótmæltu innrásinni í Írak voru kallaðir stuðningsmenn Saddams, að þá séum við sem erum á móti fjölmiðlafrumvarpinu núna kallaðir stuðningsmenn Jóns Ásgeirs Jóhannessonar.
Ég er ekkert sérstaklega hlynntur Baugi og Jóni. Ég er reyndar frekar neikvæður út í Baug sem mér finnst stjórna of stórum hluta smávörumarkaðar á Íslandi. En ég er samt á móti fjölmiðlafrumvarpinu vegna þess að mér finnst ekki rétt að takmarka málfrelsi manna og fyrirtækja svona og bækla atvinnugrein sem nú þegar stendur á brauðfótum.
(svo hef ég persónulegar ástæður, Ég var í atvinnuviðtali uppi á Norðurljósum daginn áður en þetta fór allt saman af stað. En hvað ég get verið óheppinn!)Það sem er að í íslensku þjóðfélagi er ekki það að markaðsráðandi fyrirtæki eigi fjölmiðla, heldur það að þau eru markaðsráðandi. Mér leist ekkert á blikuna þegar Baugur gleypti 10-11 um árið en stjórnvöld gerðu ekkert. Afhverju? Fólk segir að samkeppnisyfirvöld eigi að sjá um svona, og vanfjármögnuð Samkeppnisstofnun segist ekki geta haft frumkvæði að neinu, kæra þurfi fyrst að koma fram og þá geti stofnunin tekið á málinu mörgum mánuðum eða árum seinna.
Það sem stjórnvöld ættu að gera er að efla Samkeppnisstofnun svo hún hafi bolmagn til að sprengja fákeppnina á íslenskum matvörumarkaði. Það að slíta matvörukeðjurnar frá hvor annari myndi ekki enda með kreppu á matvörumarkaði, heldur myndi samkeppni aukast og vöruverð lækka, en gelding Norðurljósa endar með kreppu á fjölmiðlamarkaði, stórfelldu atvinnuleysi í atvinnugrein sem þegar er veik fyrir og verri fjölmiðlaþjónustu til neytenda.
En er spurningin e.t.v. sú að stjórnvöld vilji ekki hafa öflug samkeppnisyfirvöld hérna vegna hagsmuna fyrirtækja og einstaklinga sem eru þeim þóknanleg, t.d. sægreifum?