5. ágúst 2004

Gallup

Fade in.

Inni. Heimili í vesturbæ Reykjavíkur. Kvöld.


JÓSI, 28 ára úrtak í skoðanakönnunum er við vaskinn heima hjá sér að vaska upp þegar GSM sími hans hringir. Hann skrúfar fyrir vatnið og svarar.


JÓSI:

Halló

RÖDD Í FARSÍMANUM:

Góða kvöldið, þetta er hjá Gallup, þú hefur lent í úrtaki hjá okkur, viltu svara nokkrum spurningum?

JÓSI:

Já, já.

RÖDD Í FARSÍMANUM:

Átt þú eða hefur þú aðgang að farsíma?

Við þetta veit JÓSI ekki hvað hann á að segja. Hann starir í vantrú á farsímann sinn og reynir að segja eitthvað en andvarpar svo loks með vanþóknunartón.


Fade out

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)