15. júlí 2003

Kort, GPS og myndavélar (eða gnu/map ?)

Keli og Már hafa verið duglegir undanfarið við að fara í göngutúra með GPS tæki til að kortleggja strandir Íslands og Keli hefur sett upp vefsíðu með kortinu sem er þannig að verða til. Þetta rifjaði upp fyrir mér hugmynd sem ég fékk um miðjan síðasta áratug og ræddi við félaga mína. Loga fannst ég vera frekar bjartsýnn eða bilaður að láta mér detta þetta í hug og sagði þá fleygu setningu: "þú ert að tala um alveg.... mörg terabæt!". Þetta var jú í þá daga þegar við vorum enn að láta okkur dreyma um harða diska sem næðu einu gígabæti ;-)

Þessi blessaða hugmynd mín gekk út á það að búa til þjónustu/tækni á internetinu sem væri n.k. open-source (eða öllu heldur open-content) kort; Fólk gæti búið til tví/þrívíddarmódel af einhverjum hluta af heiminum og hýst á þartilgerðum þjóni og miðlægur þjónn sæi síðan um að vísa notendum á rétt kort. Þá gæti maður farið á þennan miðlæga internetþjón, fengið upp mynd af jörðinni og gæti síðan zoomað inn á þann stað sem maður hefði áhuga á. Upplausnin myndi síðan ráðast af gæðum þeirra gagna sem fólk hefði sent inn um þann stað sem maður væri að skoða.
Sniðugt væri að hafa hýsingu allra þessara gagna tiltölulega dreifða; Þó að nauðsynlegt væri að hafa einn netþjón sem upphafspunkt gæti samt hver sem vildi geymt kort af sínum hluta af heiminum hjá sér og og miðlægi þjónninn vísar síðan á það kort. Ef mörg kort eru til af sama svæðinu er boðið upp á kosningakerfi og notendurnir kjósa um hvaða gögn eru nákvæmari. Með því að beita lýðræðinu svona væri hægt að minnka það að fólk setti vísvitandi vitlausar upplýsingar inn í kerfið; Þannig gögn yrðu kosin út úr kerfinu.

Miðlægi þjónninn yrði að vera speglaður um allan heim, öryggis og hraða vegna. Þó að mér fyndist best að vera með bara eitt http://eitthvað.kortaURL.com/ sem fólk ætti að muna þá finnst mér að tæknin ætti reyndar að bjóða upp á það að hver sem er gæti sett upp sinn eigin miðlæga þjón sem þyrfti þá ekki endilega að vera knúinn af sama lýðræði eins og þessi "aðal" draumaþjónn minn. Þá gætu t.d. ríkisstjórnir sett upp sinn þjón sem vísar bara á kort frá viðurkenndum stofnunum, og einhver gæti sett upp kort af heiminum fyrir 1000 árum osfrv.

Upphaflega sá ég fyrir mér að upplýsingar bættust inn í kerfið með því að her þrívíddargrafíknörda byggi til tölvumódel, hver af sínum parti af heiminum. Svo þegar fram kom tæknin sem forrit eins og Canoma nota sá ég að auðveldara væri ef slík tækni væri byggð inn í þetta. Ef hægt væri að mata bara inn ljósmynd og tilgreina nákvæm hnit þar sem hún var tekin þá gæti kerfið (með smá hjálp) reiknað út þrívíddarmynd af því sem hún er af. Þetta myndi líka þýða að kerfið gæti notað gögn sem berast beint, eins og frá t.d. öryggismyndavélum. Þá myndi maður skoða kort af einhverjum stað og þegar maður zoomaði inn á hluta sem bein myndavél næði yfir þá myndi kerfið sjálfkrafa skipta yfir í þá beinu útsendingu. Þessi hugmynd um að mata kerfið á myndum myndi virka því betur sem sjálfvirknin er meiri. Þessvegna er Exif alveg rakið fyrir þetta; Exif eru aukaupplýsingar sem myndavélar skrá, allt frá ljósopi að GPS hnitum ef vélin styður svoleiðis (einn töffari forritaði tól til að setja upp myndablogg sem skráir sjálfkrafa hvar myndin er tekin.). Myndir úr Exif væddum vélum myndi þá vera hægt að mata beint inn í kerfið og það uppfærði þá upplýsingarnar samkvæmt þeim.

Þetta eru náttúrulega óttalegir draumórar hjá mér sem ég er viss um að aðrir hafa pælt í líka. Auðvitað eru til síður eins og MapQuest en gögnin þar þróast ekki og batna með tímanum eins og þetta kerfi sem ég er að stinga upp á myndi gera. Maður vonar, fyrst að svona kerfi ætti að verða alltaf betra og betra, að á endanum yrðu ókeypis gögnin í því betri en þau fokdýru gögn sem fyrirtæki eins og Landmælingar gefa út.

ativan withdrawal

Lesið meira hér.

Ativan, June 27, 2006 14:39

welbutrin seizures welbutrin weight gain welbutrin xl and alcohol

Lesið meira hér.

welbutrin, July 18, 2006 11:59

klonopin for anxiety klonopin and weight gain buy klonopin day. klonopin withdrawal.

Lesið meira hér.

klonopin, July 19, 2006 12:38

tramodol hcl cheap tramodol

Lesið meira hér.

tramodol hcl, July 24, 2006 19:59

pohooo...

Lesið meira hér.

nehui, July 26, 2006 12:40

cheep tickets, cheep flights.

Lesið meira hér.

cheep tickets, July 28, 2006 04:44

cheep tickets, cheep flights.

Lesið meira hér.

cheep tickets, July 28, 2006 04:54

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)