20. febrúar 2004

Góðverk dagsins

Fade in.
Inni. Heima hjá Jósa. Skömmu fyrir hádegi.

JÓSI, rytjulegur sjónvarpsglápari með ferköntuð augu bak við ferköntuð gleraugun sest í sófann hjá sér og kveikir á sjónvarpinu. Hann beitir fjarstýringunni óspart og endar loks á útsendingu Alþingis. Á sjónvarpsskjánum má sjá tóman ræðustól og sæti forseta Alþingis.

Jósi:
Hmmm, venjulega birta þeir nú skilti sem segir "Hlé á þingfundi". Einhver hlýtur að hafa gleymt að ýta á einhverja takka. En ég nenni nú ekki að horfa mikið lengur á tóman alþingissal....

Jósi mundar fjarstýringuna og er við það að fara að skipta um stöð. Skyndilega birtist á skjánum maður sem stígur í ræðustól Alþingis.

Jósi:
Hver er nú þetta? Þetta er ekki alþingismaður.

Á skjáinn kemur annar maður sem stendur fyrir framan ræðustólinn. Fyrri maðurinn sem stendur í ræðustól færist allur í aukana við þetta og byrjar að benda út í loftið og þykjast halda ræðu. Sá seinni vill taka þátt í gríninu og fer og sest í stól forseta Alþingis og lætur valdsmannslega.

Jósi:
(hálfhlæjandi)
Nú er ég alveg hættur að botna í þessu. Verst að það er ekkert hljóð með þessu.

Jósi teygir sig í símann og hringir.

Jósi:
(í símann)
Já, halló, Alþingi? Hérna, eru leikarar að fá að taka eitthvað upp inni í þingsalnum? Það hefur nefnilega gleymst að slökkva á beinu útsendingunni á breiðbandinu og ég get séð allt sem gerist inni í salnum...

Úr símanum má greina daufa kvenmannsrödd.

Jósi:
Já, er það. Þetta er sumsé arkitektar og smiðir. Jú, einmitt, það kom náttúrulega þessi leki í gær. Taka allan salinn í gegn segiru, jújú, ekki vanþörf á ha-ha-ha. En þið komið þessu áleiðis til þeirra sem sjá um sjónvarpsútsendinguna. Já. Bless.

Jósi leggur á og brosir með sjálfum sér, greinilega ánægður með að hafa unnið góðverk dagsins. Á sjónvarpsskjánum er gangi eitthvað sem virðist vera keppni í hver getur hermt best eftir Halldóri Blöndal. Mennirnir hætta því snögglega, stara vandræðalega í myndavélina, og ganga út úr mynd. Eftir nokkra stund rofnar útsendingin.

Fade out.
Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)