Helvítis dópistar og þjófar
Í morgun vaknaði ég við símtal frá lögreglunni. Þeir höfðu farið inn til einhvers sprautufíkils á Hverfisgötunni og séð þar glænýjan skenk frá Ikea og farið að spá í hvernig hann hafði fengið hann, og eftir smáleit fannst kvittun, í mínu nafni. Þarna var sumsé þjófurinn sem rændi jakkanum mínum og veskinu um daginn.
Í ljós kemur að þrátt fyrir að ég tékkaði á stöðunni á kortunum um leið og ég fattaði að einhver hafði farið inn og stolið jakkanum, þá komu færslurnar ekki strax fram. Mannandskotinn hafði tekið út af kreditkortinu mínu fyrir 58.150 kr.
Ekki hefur löggan enn fundið jakkann, en ég vona að Visa endurgreiði mér peningana. Það er í vinnslu hjá Visa eins og er.
Ég hef síðan fengið að heyra að þetta sé mjög vafasamur karakter sem rændi mig, búinn að vera vitni að tveimur dóptengdum dauðsföllum og allt. Spurning hvernig það mun ganga að rukka hann um jakkann minn, það gæti verið að ég myndi þurfa að höfða einkamál gagnvart honum til þess að fá andvirðið...
En það má samt skemmta sér yfir þessu, við skulum skoða til gamans hvað hann hefur gert með kortinu mínu:
- Fyrst er það Strætó BS, 6.200 kr. Ætli hann hafi verið að kaupa sér grænt kort? Eða tvö?
- Svo er það Bónusvídeó, 6.540 kr. Alltaf gott að borga leiguskuldirnar, og jafnvel kaupa sér kók og popp.
- Næst kom Olís, Mjódd. Heilar 7.115 kr. Skyldi hann hafa verið að kaupa bensín? Eða var hann bara að nota græna kortið? E.t.v. var hann að kaupa lím til að sniffa?
- Svo liggur leiðin aftur niður í bæ, í 10-11 Barónsstíg. Þar verslar hann nauðsynjar til heimilisins fyrir 5.804 kr. Örugglega speltbrauð og heilsufæði.
- Þá kemur að gleðinni, 12.541 kr. í Vínbúðinni Holtagörðum. Kannski fór þetta allt í Créme de Menthe flöskur?
- Og svo fer hann hinum megin við vegginn til Ikea og kaupir skenkinn fína á 19.950 kr. Örugglega verið skenkur sem heitir eitthvað eins og Uddevalla.
Starfsfólk þessara verslana ætti að taka betur eftir.
Máski hugsar hann þetta sem endurfjármögnun skulda, hefur heyrt að vextirnir hjá þér séu lægri en í Bónusvideó ...
Ásgeir H skrifaði kl. 19:32, 13 september, 2006