Hórur
Fade in.
Gata í Prag. Það er vetur en samt snjólaust. Kvöld.
JÓSI, ferðamaður frá Íslandi bíður við gangbraut eftir grænu ljósi. Við hliðina á honum stendur STELPA, ca. 20-25 ára gömul. Hún er klædd í gallabuxur og dúnúlpu og lítur út eins og háskólanemi.
(tautar eitthvað óskiljanlegt á tékknesku)
Erm, sorry I´m a tourist.
Oh I see! You want sex?
(frekar hissa, honum hafði greinilega ekki dottið í hug að STELPAN gæti verið vændiskona)
Ahem, well, no thank you...
But it´s good!
Gangbrautarljósið skiptir í grænt og JÓSI brosir vandræðalega framan í STELPUNA og hraðar sér yfir.
DISSOLVE TO:
Sjónvarpsstúdíó. JÓSI, vinnufélagi hans EINAR og nokkrir fleiri sitja að loknum vinnudegi og spjalla saman.
...og svona voru kynni mín af hórunum í Prag. Hún var nú nokkuð sæt þessi stelpa svo að ég hefði ábyggilega verið skotinn í henni ef aðstæður hefðu verið öðruvísi.
En hvað ef hún var ekki hóra? Kannski var hún bara að reyna við þig, hún spurði aldrei um peninga...
Allir hlæja nema JÓSI sem starir hugsi út í loftið.
Inni. Svefnherbergi JÓSA. Nótt.
Jósi liggur í rúminu og byltir sér. Raddir fólks úr síðustu atriðum heyrast.
You want sex?
En hvað ef hún var ekki hóra? En hvað ef hún var ekki hóra? EN HVAÐ EF HÚN VAR EKKI HÓRA?
JÓSI vaknar með harmkvælum og rís snögglega upp. Hann andvarpar, strýkur framan úr sér svitann og fer aftur að sofa.
Fade out.