Kominn út úr skápnum
Partý er í gangi og fólk situr útum allt og er að drekka og skemmta sér. Í einu horni er JÓSI, nördalegur ungur maður, og DRUKKIN LESBÍA að tala saman. Drukkna lesbían getur varla talist vera við fulla meðvitund.
(heldur að hann sé ofsalega sniðugur)
Já, þú og ég eigum eitt sameiginlegt sko. Ég var nefnilega einu sinni með sítt hár og gekk í leðurjakka og svona og þóttist vera töffari. En svo fattaði ég að þetta væri í rauninni ekki ég. Ég klippti mig því stutt og fékk mér þessi gleraugu og kom í raun út úr skápnum með þetta: Ég er nörd, en ekki töffari.
Ég skil. Þetta er erfitt. Ég skil.
Jósi:
(skynjar einhvern misskilning)
Ha? Já, jú. En ég var ekki að meina að ég hafi gerst samkyn...
Drukkna lesbían stöðvar Jósa með því að grípa fyrir munn hans og klemma varirnar saman.
Ég skil. Ég skil. Gott.
Jósi:
(gegnum samanklemmdar varirnar)
Ehn hég her hekki hommi! Hetta har gríhn uhm þahð ahð éhg hsé hnörd! Hfattaru?
Drukkin lesbía:
(ekki að meðtaka neitt)
Ég skil. Ég skil. Gott. Gott. Við þekkjum þetta bæði.
Fade out