Kormákur og Skjöldur
Þegar reykingabannið gekk í garð síðasta sumar þá kvörtuðu veitingamennirnir Kormákur og Skjöldur mikið yfir því að þetta myndi þýða mikið tekjutap fyrir þá. Ég hef síðan þá reynt að styðja þá félaga með því að versla hjá Ölstofu Kormáks og Skjaldar, og mér sýnist fleiri hafa tekið það upp því það er oftast nóg að gera á Ölstofunni og oftast biðraðir þar fyrir utan um helgar.
En í gærkvöldi fannst mér ekki gaman þar því að staðurinn var orðinn reykmettaður eins og hann var fyrir bannið. Mér datt í hug að hringja því einfaldlega í vertinn og spyrja kurteislega hvort að ekki væri hægt að banna reykingar á staðnum fyrst að þær angri góða kúnna eins og mig.
Kormákur er ósköp ljúfur að ræða við í eigin persónu, hann var að koma af fundi þar sem hann var einmitt að ræða reykingamálin og segir að þetta leyfi fólks til að reykja sé sennilega bara tímabundið. Vertarnir eru ekki alveg á móti okkur greyjunum sem reykjum ekki og láta reykingar fara í taugarnar á okkur, heldur séu þeir að halda uppi mótmælum til að berjast fyrir réttindum þeirra sem þyrftu annars að norpa úti í kuldanum.
Ég ætla að kíkja á Ölstofuna í kvöld og athuga andrúmsloftið.