Macro-myndataka
Á huga.is sá ég þessa grein sem fjallaði lauslega um macro-myndatöku. Þar er svar þar sem einhver er að spá réttilega í því afhverju þetta heitir "macro" þegar "macro" þýðir "eitthvað stórt" (og "micro" þýðir "eitthvað lítið").
Hið rétta svar er það að þetta heitir macro-myndataka vegna þess að þegar macro-linsur eru notaðar, þá er fyrirmyndin nær linsunni en nemur brennivídd hennar, og er stærri en flötur filmunnar.
Síðan er til micro-myndataka, en þar er fyrimyndin (líka nær linsunni en nemur brennivídd hennar) minni heldur en filman.
Þegar fyrirmyndin er fjær linsunni en nemur brennivídd hennar, þá heitir það bara myndataka ;-)
Veit annars einhver hvernig ég get sannfært huga.is um að leyfa mér að svara þessu þar? Kerfið þar byggist á kennitölum og póstföngum og fyrst ég skráði mig á sínum tíma undir gömlu póstfangi sem er ekki í notkun núna þá get ég ekki skráð mig inn tók það smátíma að fá lykilorðið