Mogginn góður
Í Morgunblaðinu var ég að lesa þessa snilldargrein. Þar er talað um þrenn óskarsverðlaun Sylvesters Stallone (eða Silvesters eins og þar er stafsett), og að hann hafi leikstýrt Taxi Driver.
Hið rétta er að hann fékk aðeins tvær tilnefningar fyrir Rocky, og að hann kom ekki nálægt Taxi Driver sem Martin Scorsese leikstýrði.
Gott að vita að þegar ríkistjórnin verður búin að leggja niður aðra fjölmiðla en þá sem eru henni þóknanlegir þá verða eftir ábyrgir fjölmiðlar sem vinna góða rannsóknarvinnu.
