Svona setur maður þá saman vefsíðu...
Í fyrra var ég við það að setja nýja útgáfu af vefsíðunni minni í loftið, en þá hrundi vefumsjónarkerfið mitt. Svo liðu nokkrir mánuðir þar sem ég hafði ekki tíma til að sinna vefnum, og svo dó tölvan mín svo að þó hafi haft tíma fyrir þetta undafarna mánuði þá hef ég ekki haft græjur til þess.
En nú er ég sumsé kominn með almennilega tölvu og er að vinna í því að setja upp nýjan vef, og að setja allar gömlu færslurnar upp aftur. Eins og er þá er ekki hægt að treysta á neitt hérna. Vefurinn mun breytast til og frá næstu vikur, og færslur munu birtast og hverfa á víxl, linkar detta inn og út, og allt verður hérna álíka traust og öryggi starfsmanna á Kárahnjúkum. Sjáum hvort ég nái að gera boðlegan vef hérna...
*** viðbót 28.4: Gömlu færslurnar eru komnar inn en öll ummælin sem stóðu við þær höfðu eitthvað ruglast til í flutningunum milli movable type uppsetninga. Fyrst um sinn þá munu þær bara vera kommentalausar, sjáum hvort ég nenni að fara að raða kommentunum upp handvirkt...
Velkominn aftur! :)
Freyr skrifaði kl. 13:42, 2 maí, 2006