Ping-pong á Kleppi
Fade in
Úti. Bíll. Snemma kvölds 4. mars 2003.
JÓSI og FRÆNDI hans eru að rúnta um eftir kvöldmat.
FRÆNDI:
Ættum við að fara í borðtennis? Ég hef verið á göngudeild á Kleppi og við getum spilað þar.
JÓSI:
Ha? Jájá.
Inni. Borðtennisherbergi á geðsjúkrahúsinu Kleppi. Kvöld.
Jósi og frændi hans ganga inn, leggja frá sér yfirhafnir og taka sér stöðu við borðtennisborð. Þeir byrja spila og Jósi spilar alveg hræðilega. Frændinn leikur sér að honum.
Eftir að þetta hefur gengið svona í smástund gengur DARTH MAUL úr Star Wars: Episode 1 og fer að fylgjast með þeim spila. Jósi rekur upp stór augu en frændi hans heldur áfram að spila mun betur en Jósi.
DARTH MAUL:
Getiði skipt fimmhundruðkalli?
JÓSI:
(hikandi)
Ég veit það ekki, ég er kannski ekki með nóg..
Jósi stingur höndum í vasa og leitar að klinki...
JÓSI:
Heyrðu ég er með nóg. Gerðu svo vel.
Jósi og Darth Maul skiptast á fimm hundraðköllum og einum fimmhundruðkalli. Darth Maul fer út úr herberginu og Jósi og frændi hans snúa sér aftur að hinum mjög svo ójafna leik.
Eftir nokkra stund kemur Darth Maul aftur inn í fylgd Harlekíns, trúðs með svart- og hvítmálað andlit. Darth Maul heldur á pepsidós.
DARTH MAUL:
Viljiði pepsi?
JÓSI:
Nei, takk...
Meðan Jósi horfir á Darth Maul og Harlekín nýtir frændi hans tækifærið og neglir sigurskotinu framhjá Jósa.
Fade out