19. nóvember 2001

Prag er æði!

Ég var að koma frá Prag þar sem ég fór á Rammsteintónleika, gekk lappirnar af mér við að skoða túristastaði og drakk fullt af bjór sem kostaði 50 kr íslenskar. Fegurðin og menningin er svo mikil þarna að maður vill endilega prófa að búa þarna. Ég ætla að sækja um í kvikmyndaskólanum í Prag og sjá til :-)