← Eldri
(Die Schönsten Bahnstrecken)
Heim Yngri →
(Ríkið í Verslunarskólanum)
23. nóvember 2003

Rangur misskilningur

fade in.

Inni. Íbúð Stebba. Sumarkvöld.

Jósi og Stebbi, nördalegir piparsveinar á þrítugsaldri sitja og horfa á vídeó.

Stebbi:
Hefurðu heyrt um Steinu? Hún er víst byrjuð með þessum Tóta þarna sem við hittum einusinni í partýi hjá henni.
Jósi:
Ætli það valdi ekki þessu strákastóði sem hangir í kringum hana miklu hugarangri. Þeir eru allir bálskotnir í henni. En ekki við, við látum þetta ekkert á okkur fá.

Þeir hlæja báðir vandræðalega og halda áfram að horfa.

Cut to:

Úti. Grettisgata. Laugardagskvöld næsta haust.

Jósi, hávaxinn einfeldningur er labbandi í gegnum miðbæinn. Hann rekur augun í Steina, skeggjaðan dreng með gleraugu í leðurfrakka. Jósi kannast greinilega við hann og gengur til hans.

Jósi:
Hæ, Steini. Hvað segiru?
Steini:
Hæ, bara allt fínt. Hefuru heyrt um Steinu og Tóta?
Jósi:
Nei, hvað?
Steini:
(ábúðarfullri röddu)
Hún er ekki lengur einsömul.
Jósi:
Núúúúúú
Steini:
Já, svona er það bara.
Jósi:
(v.o.)
Jahérna, Steina ekki kona einsömul. Mér hefur reyndar alltaf fundist hún vera þessi mömmulega týpa. Sko hana.
Cut to:

Inni. Heimili Jósa. Sólarhring síðar.

Jósi situr einu sinni sem endranær við tölvuna og opnar spjallforrit. Hann sér nafn Steinu birtast á vinalistanum og smellir á hana. Á skjánum birtist eftirfarandi:


Jósi says: (22:44:07e.h.)
   Er það satt sem maður heyrir um þig?

Steina Kleina says: (22:44:32e.h.)
   já örugglega

Jósi says: (22:44:49e.h.)
   jahérna

Steina Kleina says: (22:45:04e.h.)
   hvað nákvæmlega?

Jósi says: (22:45:05e.h.)
   Til hamingju!

Jósi says: (22:45:13e.h.)
   Fjölga mannkyninu

Jósi brosir með sjálfum sér. Nokkrum sekúndum síðar birtist eftirfarandi á skjánum:

Steina Kleina says: (22:45:47e.h.)
   ha?

Steina Kleina says: (22:45:48e.h.)
   neii

Jósi says: (22:45:57e.h.)
   núúúúúúú

Jósi says: (22:46:11e.h.)
   Ég misskildi þá eitthvað allhrapallega

Steina Kleina says: (22:46:14e.h.)
   bíddu bíddu

Steina Kleina says: (22:46:21e.h.)
   hver sagði svoleiðis?

Jósi says: (22:46:30e.h.)
   heh

Svitinn sprettur fram á enni Jósa. Hann iðar vandræðalega í stólnum þegar eftirfandi fer fram á tölvuskjánum.

Steina Kleina says: (22:46:51e.h.)
   jú

Steina Kleina says: (22:47:00e.h.)
   kommon það er nú bara fyndið

Jósi says: (22:47:10e.h.)
   Steini var með einhverjar meiningar pissfullur í gærkvöldi

Steina Kleina says: (22:47:12e.h.)
   :-*

Jósi says: (22:47:21e.h.)
   ég skildi það svona

Steina Kleina says: (22:47:24e.h.)
   Steini vinur minn?

Jósi says: (22:47:31e.h.)
   hálfenski

Steina Kleina says: (22:47:38e.h.)
   með enska hreiminn?

Jósi says: (22:47:44e.h.)
   jamm

Steina Kleina says: (22:47:45e.h.)
   hvar sástu hann

Steina Kleina says: (22:47:54e.h.)
   og hvaða fleiri meinigar var hann með?

Jósi says: (22:48:08e.h.)
   hann sagði eitthvað eins og "hefyr heyrt um Steinu og Tóta?"

Jósi says: (22:48:15e.h.)
   ég: "hvað"

Jósi says: (22:48:29e.h.)
   hann "hún er ekki lengur einsömul"

Jósi says: (22:48:35e.h.)
   eða eitthvað á þá leið

Jósi says: (22:49:04e.h.)
   ég sagði bara stórt núú er það! og tók þessu sem svo að þú værir ólétt

Jósi says: (22:49:19e.h.)
   þetta er drepfyndið svona eftirá

Steina Kleina says: (22:49:26e.h.)
   já ég skil

Jósi:
(V.O.)
Andskotinn! Steini var bara að meina að Tóti og Steina væru byrjuð saman! En það eru gamlar fréttir, Stebbi sagði mér þaðö í sumar. Hverjum er ég búinn að segja frá þessari uppdiktuðu óléttu á þessum sólarhring? Ég verð að hringja og útskýra þetta. Látum okkur sjá það var Stebbi, Kiddí...

fade out.

1 ummæli

jaeja...
svona gengur or gerist...
:)

steini (1/4 enski) skrifaði kl. 02:28, 20 nóvember, 2006

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)