← Eldri
(Rangur misskilningur)
Heim Yngri →
(Djö, helv, ansk.)
23. nóvember 2003

Ríkið í Verslunarskólanum

Þegar ég var í Menntaskólanum við Hamrahlíð þá ríkti mikill rígur milli framhaldsskóla (og gerir eflaust enn). Mestur er rígurinn milli Versló og MR, sem voru jú einu sinni einu tveir framhaldsskólarnir. Ég orða þetta oft þannig að Versló og MR hatist, og allir hinir skólarnir sameinist um að hata þá.
Ég var alveg einstaklega heilaþveginn MH-ingur, gargaði úr mér lungun sem hluti af klappliði MH (ásamt Má, Sigga Palla og fleirum) og leit niður á alla aðra skóla. Við í MH fundum samt alltaf mest fyrir Versló sem er jú bara í nokkur hundruð metra fjarlægð, og hegðuðum okkur eftir því. Ég og Svavar fórum t.d. í vísindalega rannsóknarferð yfir Kringlumýrarbrautina með klemmuspjald og skráðum hegðun og atferli verslónemanda og fríður flokkur eðlisfræðinemanda (með Kela í broddi fylkingar minnir mig) ákvað að smíða eldflaug og skjóta á Versló. Eldflaugin sjálf var smíðuð en ekki fór mörgum sögum af flughæfni hennar. Ég man eftir því að hafa tekið þátt í háalvarlegum umræðum um hvernig sprengihleðslu væri best að senda með henni.
Skólarnir hafa líka allir sínar staðalímyndir; Við í MH vorum lopapeysuhippakommar og Verslingar forríkir pabbastrákar á rándýrum bílum, vegna þess að skólinn er jú beinlínis að ala upp wannabe viðskiptafræðinga. Þessar hugmyndir um Verslinga hafa aldrei horfið mér úr minni, og þegar Valur gamli bekkjarbróðir minn úr grunnskóla hringdi í mig um daginn og bað mig um að taka upp tónleika sem hann var að fara að halda í hádegishléi í Versló þá kviknaði hjá mér áhugi. Hljómsveitin hans Vals, Ríkið, flytur merkingarþrungna vinstrisinnaða tónlist sem fjallar um neyslumenninguna, bandaríkin og fleira sem er hugsjónamönnum hugleikið. Það að setja þessa reiðu pönkara inn í Versló hlýtur að vera flott kúltúrclash. Og viti menn, Verslingarnir höfðu ósköp lítinn áhuga á þessu, svo að ég einbeitti mér að því að sýna skot af þeim að standa upp og fara, á bílastæðinu fann ég nóg af rándýrum bílum til að gera smá inngang að myndbandinu (þetta hlýtur að vera eini framhaldsskólinn á landinu þar sem finna má tvo Benza hlið við hlið!), og stofurnar merktar fyrirtækjunum sem sponsoruðu skólann eru skemmtilega myndrænar. Þetta er samt allt bara heimildarmyndir af skólanum, það er ekkert feikað þarna.

Útkoman er annars hér.

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)