Rökræður
Fade in.
Frystihús. Inni. Sumar 1995
JÓSI, 19 ára sláni með sítt hár í hárneti og VINNUFÉLAGI hans eru að raða fiski í flökunarvél.
VINNUFÉLAGI:
Jósi?
JÓSI:
Já.
VINNUFÉLAGI:
Þegiðu!
JÓSI yppir öxlum.
VINNUFÉLAGI:
Þú gast ekki sagt mikið við þessu, er það?
JÓSI:
(þurr á manninn)
Nei, þarna hljópstu hringi í kringum mig með rökfræðinni...
VINNUFÉLAGI:
(hlæjandi hrossahlátri, skilur ekki kaldhæðnina)
Já!
JÓSI snýr sér aftur að því að flaka fisk.
Fade out.