RSS-fíkn
Halló. Ég heiti Jósi og ég er RSS-fíkill (Halló, Jósi)...
Þetta er kannski ekki alveg svona slæmt en nú þegar bloggið mitt er ársgamalt og ég lít yfir farinn veg þá finnst mér merkilegt hvað ég er hef orðið háður RSS efnisyfirlitatækninni á síðastliðnum vikum og mánuðum. Bjarni smíðar og gefur út RSS-yfirlit fyrir þær síður sem gera það ekki sjálfar (maðurinn er bara dýrlingur!). Ólíkt Bjarna þá er ég ekki með iframe glugga á síðunni minni sem þylur upp nýjustu fyrirsagnir, heldur er ég með sérforrit á makkanum mínum sem sækir fyrirsagnirnar og sýnir hversu margar ólesnar eru í Dockinu.

Hér má sjá íkonin fyrir vefráparann minn, póstforritið mitt, RSS-lesarann minn, spjallforritið mitt, dagbókarforritið mitt og netfangaskrána mína. Mörg þessara forrita nota tæknina í stýrikerfinu til að gefa upplýsingar til kynna í íkoninu sínu. Á myndinni hér fyrir ofan má sjá hversu mörg bréf ég á ólesin, hversu margar greinar á vefsíðum ég á eftir að skoða og hversu mörg chat-skilaboð eru ólesin. Þetta er verulega þægilegt að sjá þetta allt á einum stað og ég er eins og áður sagði háður því að nota þetta.
En gallinn er sá að ekki er til RSS fyrirsagnir fyrir allar síður, og RSS veitan hans Bjarna er ekki óskeikul, t.d. virkar RSS-ið af Síðunni hans Sigga Palla ekki (vegna þess að rss.molar.is þjónustan hans Bjarna vill hafa ákveðinn rithátt á vefsíðum sem er ekki á nýjustu útgáfu af síðunni hans Sigga). Og ég er farinn að reka mig á að ég skoða einfaldlega ekki síður eins og ég gerði áður. Fyrir tæpu ári renndi ég yfir alla linka hér hægra megin á síðunni minn einu sinni á dag en nú skoða ég bara ó-RSS-væddar síður á nokkura vikna fresti.
Ég vona að núna þegar ég er orðinn meðvitaður um þetta að ég eigi eftir að muna að skoða RSS-lausar síður aðeins oftar í framtíðinni...