RÚV
Undanfarið hefur styr staðið um Ríkisútvarpið-sjónvarp vegna þess að sjónvarpið ætlar víst ekki að kaupa íslenskar myndir í bráð vegna offjárfestinga í íþróttaefni, en í ár eru víst bæði Ólympíuleikar, handboltamót og eitthvað eitt mjög svo mikilvæga stórmótið í viðbót (sem er þó ekki það mikilvægt að ég muni hvað það er ;-) og þarmeð eru fjárráð RÚV uppurin í ár.
Þetta eru réttlátar pælingar. Bévítans íþróttirnar hafa allt of lengi fengið að tröllríða öllu í sjónvarpi allra landsmanna. Við erum látin sitja undir fleiri, fleiri klukkutímum af íþróttum í hverri viku og ef að einhver íþróttaviðburðurinn þykir örlítið merkilegur er allri dagskránni riðlað. Jafnvel þegar suðurlandsskjálftinn kom þá þótti ekki vera ástæða til að rjúfa eitthvert helvítis boltabullið fyrir lögbundnar almannavarnaútsendingar!
En þó að íþróttirnar séu sýnilegasta vandamál RÚV þá liggur vandinn samt dýpra. Það mætti laga ýmislegt á þessari stofnun en til að gera breytingar á henni þarf að fara í gegnum ótrúlegt skrifræði og pólitík.
Hugsanagangurinn á þessari stofnun virðist vera sá að hella öllu fé í stök verkefni (sem eru þó unnin vel) og ekki taka neinar áhættur. Mér finnst þetta vera rangur hugsanagangur við gerð sjónvarpsverka. Það er betra að gera tvö ódýr verkefni en eitt dýrt. Það eina sem skiptir máli er það sem sést á skjánum, ekki það að þátturinn hafi verið gerður samkvæmt öllum EBU-stöðlum eða að allar deildir hafi náð að maka krókinn við gerð hans.
Ég get hugsað mér ýmislegt sem betur mætti fara á Efstaleitinu:
- Þegar flutt var í Efstaleitið þá var eytt óhuggulegum fjárhæðum (hundruðum milljóna ef ekki milljörðum*) í að setja upp tækjabúnað þar. T.d. var sett SDI vídeódreifikerfi innanhúss sem var það nýtt (lesið: Dýrt) að erlendar sjónvarpsstöðvar hafa sent sitt fólk í skoðunarferðir til RÚV til að pæla í hvernig þeirra stöðvar eiga að verða í framtíðinni (þegar svona tækni verður ódýrari). Þetta verður samt ekki tekið tilbaka svo auðveldlega.
- Ég hef heyrt sögur af því að myndmixerinn í myndstjórninni í Efstaleiti hafi kostað 12 milljónir og að við hann hafi líka verið keypt 8 milljóna tölvugrafíkviðbót sem enginn kann á og ekki er notuð. Mér skilst að þátturinn Mósaík sé víst settur saman og á hann bætt effektum í klippitölvu þó að hægt væri að nota mixerinn til að framkvæma þá efffekta sem notaðir eru.
- Fréttir og Kastljós sem eru tekin upp í litlu horni í risastóra stúdíóinu. Upphaflegu teikningarnar gerðu ráð fyrir því að innréttað væri sér stúdíó og myndstjórn (stýriherbergi) fyrir þessa þætti en þegar komið var að því var búið að fara svo hressilega fram úr fjárhagsáætlunum að einhverju þurfti að fórna. Litla stúdíóið er stundum notað fyrir íþróttaþætti og er þá kamerum ekið yfir í það og stóra myndstjórnin notuð. Það að fréttirnar séu í stóra stúdíóinu þýðir að allar upptökur þar þurfa að klárast vel fyrir fréttir. Þessi tækjakaupasparnaður í litla stúdíóinu þýðir í raun aukinn launakostnað og óhagræði í stóra stúdíóinu vegna þess hve stór hluti af hverjum sólarhring fer í fréttaútsendingar.
- RÚV sér líka sjálft um að innheimta afnotagjöld. Ef að sú fjármögnun færi fram með skattlagningu eins og fjármögnun annarra ríkisfyrirtækja þá myndu sparast tugmilljónir króna á hverju ári
- Ef gengið væri frá litla stúdíóinu og smíðaverkstæðið lagt niður þá væri kominn grundvöllur fyrir því að leigja stóra stúdíóið út í önnur verkefni. Það myndi hjálpa til við að borga fyrir þessu dýru tæki.
En þessar hugmyndir eru draumórar. Þó að vel gæti gerst að t.d. litla stúdíóið yrði klárað einhverntíman þá þarf kraftaverk til að allt pólitíska batteríið yrði sammála um róttækar breytingar eins og að sinfónían yrði gerð sjálfstæð eða afnotagjöldin lögð niður.
En mig dreymir um að menntamálaráðherra leysi þessa deilu** með því að leggja Ríkisútvarpinu eina lífsreglu:
Þá þyrftum við kvartandi og kveinandi kvikmyndagerðarmennirnir að halda kjafti.
*viðbót 3.3.2004. Svansson bendir á þessa grein og mér finnst ég þurfa að taka eitt fram: Allar krónutölur í þessari grein eru fengnar frá Gróu á Leiti, svo ég sel þær ekki dýrar en ég keypti þær. En RÚV hefur samt eytt ótæpilega í tæki meðan dagskráin hefur setið á hakanum.
Svo er réttast að taka það fram að ég var einu sinni lausráðinn afleysingamaður á fréttastofu RÚV.
**viðbót 4.3.2004 Ágúst Ólafur Ágústsson kom með fyrirspurn í þinginu í gær um það hvort ætlanir séu um að leggja afnotagjöldin niður og taka upp annað fjármögnunarform. Menntamálaráðherra og aðrir sjálfstæðismenn segja að það mætti skoða svoleiðis en eru ekki með afdráttarlausa stefnu. Framsókn er alfarið á móti þessu, og segir að það muni minnka sjálfstæði RÚV. Ég segi: Hvaða sjálfstæði? Þessi stofnun er undir ægivaldi pólitíkurinnar hvort eð er.