Siðareglur vefsíðna
Ég er búinn að vera að lagfæra aðeins Tóbakstuggu, láta lista raðast eftir fjölda færslna og reyna að hreinsa HTML-ið aðeins (þó ég sé ekki enn orðinn fullkomlega töflulaus, djöhelvansk...). En eitt aðalmálið var að setja inn vísi að siðareglum fyrir þá sem skrifa ummæli við færslurnar.
Þetta byrjaði allt með því að skrifuð voru niðrandi ummæli um einn aðila á síðuna og dulnefni skrifað fyrir þeim. Að beiðni aðilans sem um var rætt í þessum ummælum fjarlægði ég þau, sérstaklega eftir að hafa rætt við Má um þessi mál.
Már segir mér að ég sem eigandi vefsíðu beri alla ábyrgð á því sem þar er skrifað; Ef einhver sæi eitthvað niðrandi um sig sem einhver nafnlaus auli hefði skrifað í kommentakerfið hjá mér, þá gæti hann farið í mál við mig og unnið. Mér finnst þetta vera dálítið skrýtið, ef ég ætti hús, bæri ég ábyrgð á innihaldi veggjakrotsins sem væri krotað á það? Ég myndi að sjálfsögðu hreinsa af allan óþverra en ég er ekki viss um að ég myndi samþykkja að bera ábyrgð á hugsunum einhvers veggjakrotara.
Í framtíðinni ætla ég bara að passa mig að fylgjast með ummælunum hjá mér.
PS. Aðilinn sem var með niðrandi ummælin á tóbakstuggu notaði dulnefnið Transi. Eins og sjá má á svarhalanum hér þá reyndi ég að fá hann til að segja til nafns, en ekkert gekk, og eftir þessi orðaskipti hefur hann ekki látið sjá sig. Kosturinn við að hann er nafnlaus og er þá ekki nafngreind persóna er sú að ég get úthúðað honum að vild. Transi, þú ert aumingi, lúði og heigull! Ég er viss um að þú valdir þetta dulnefni af því að þú getur ekki gagnast konu! Ha, ha, ha!