Skot í fótinn
fade in
Inni. Skemmtistaður. Kvöld
JÓSI, 26 ára gagnfræðingur situr ásamt tveimur gömlum BEKKJARFÉLÖGUM og rifjar upp gamla tíma á 10 ára útskriftarafmæli.
JÓSI:
Rosalega er gaman að hitta ykkur aftur strákar, og sitja hérna og drekka bjór með ykkur.
BEKKJARFÉLAGI 1:
Já, þetta er gaman, en heyriði ég þarf að fara.
BEKKJARFÉLAGI 1 stendur upp og fer.
JÓSI:
Hvaða aumingjaskapur er þetta í honum að fara svona snemma og drekka ekki bjór með okkur? Við höfum varla hist í tíu ár.
BEKKJARFÉLAGI 2:
(eftir smá pásu)
Þetta er enginn aumingjaskapur, hann er óvirkur alkóhólisti og verður að passa sig.
Brosið stirðnar framan í JÓSA og hann snýr sér undan.
fade out