fade in.
Inni. Heimili Jósa. Dagur, 29 maí 2003.
JÓSI, stjörnuskoðunaráhugamaður og ljósmyndari er að tala í símann. Hann er greinilega spenntur fyrir einhverju og er allur á iði.
Jósi:
Já, við klífum bara Esjuna og skoðum sólmyrkvann þar. Ég var að gera við þrefaldarann svo að ég er núna með Vivitar 70-210 mm linsu með tvöfaldara og þrefaldara sem ætti að gera hana að 1260 mm, að vísu með alveg hræðilegt ljósop en þar sem ég er að mynda einhvern sterkasta ljósgjafa sem fyrirfinnst þá ætti það ekki að koma að sök.
Inni. Heimili Jósa. Dagur, 30 mai 2003.
Jósi er aftur í símanum, aðeins áhyggjufullari en daginn áður.
Jósi:
Sko, veðurspáin er ekki alveg nógu hagstæð svo að það getur verið að það sé ekki gáfulegt að fara upp á Esjuna, en við getum bara keyrt upp í Borgarfjörð og skoðað þetta frá t.d. Kroppsmúla, eða keyrt inn að Breiðafirði og skoðað þetta frá Skógarströnd, eða bara jafnvel farið upp á Holtavörðuheiði og horft út Hrútafjörð. Við spáum í veðrið og tökum ákvörðun um miðnættið. Ef allt annað bregst þá vorum við
Bragi að kaupa grillmat svo að við getum að minnsta kosti étið hann.
Úti. Bílastæði fyrir utan íbúð Stebba. Miðnætti, aðfaranótt 31. maí 2003.
Jósi og stór hópur vina hans standa við tvo bíla og eru að gera sig klára fyrir brottför. Jósi reynir að vera hress þrátt fyrir þungskýjað veðrið.
Jósi:
Jæja, það er aldeilis búið að rætast úr mætingunni, við erum 8 sem förum saman. Við skulum bara vera bjartsýnir og vona að skyggnið sé gott á Holtavörðuheiði.
Inni. Bíll akandi undir Hafnarfjalli. Kl. 01:00, aðfaranótt 31.maí 2003.
Jósi keyrir rösklega og starir áfram veginn.
Jósi:
Sko! Þarna í norðri sér maður í rauðan himinn. Það er örugglega hægt að sjá í sólina hérna aðeins lengra...
Inni. Bíll akandi eftir Norðurárdal. Uppúr kl. 01:00, aðfaranótt 31.maí 2003.
Framundan sést skýjum hulin Holtavörðuheiðin. Jósi kreistir stýrið svo að hnúarnir hvítna.
Jósi:
Jájá. Það er kannski örlítið þungbúið á heiðinni sjálfri en það er ábyggilega fínt veður upp á henni eða hinum megin við hana.
Úti. Holtavörðuheiði. Kl. 02:00 aðfaranótt 31. maí 2003.
Jósi stendur við hliðina á myndavél á þrífæti. Skyggnið er það slæmt að aðeins næsta vegstika sést. Strákarnir stara forviða á vonarglætuna hverfa úr andliti Jósa. Hann yppir öxlum og tekur myndavélina niður.
Úti. Bílastæði við Brú, Hrútafirði. Kl. 02:30 aðfaranótt 31. maí 2003.
Strákahópurinn er að teygja úr sér eftir bílferðina. Hinir leiðangursmennirnir horfa frekar undarlega á Jósa sem lítur á alskýjaðan himininn.
Jósi:
Sko, það er alskýjað hér en ef við förum hérna út fjörðinn vestann megin að Rjúpnafelli þá gætum við kannski séð sólina út við sjóndeildarhringinn...
Úti. Sunnan við Rjúpnafell, Hrútafirði. Kl. 03:00 aðfaranótt 31. maí 2003.
Hvergi sést í heiðan himinn. Bíllinn sem Jósi keyrir stöðvar þegar bíllinn sem Bragi keyrir flautar og blikkar. Bragi keyrir upp að hliðinni á Jósa. Þeir skrúfa niður rúðurnar.
Jósi:
(hlær vandræðalega)
Já, við sjáum að vísu ekki mikið hérna...
Strákarnir allir í kór:
(grípa frammí)
SNÚUM VIÐ!
Jósi:
(dæsir eftir andartaks umhugsun)
Já, ætli það ekki. Það er það brjálað veður hérna að við getum ekki grillað hér. Komum við í sumarbústað foreldra minna á leiðinni heim og grillum þar.
Inni. Sumarbústaður. Kl. 04:30 aðfaranótt 31. maí 2003.
Strákarnir sitja og borða grillmat. Jósi horfir hugsandi út í loftið.
Jósi:
(v.o.)
Næsti hringmyrkvi verður 2048. Þá verðum við tilbúnir...
fade out