Stepan Riha er sniðugur
Ég er búinn að vera að leika mér að nota MTCollate viðbótina við Movable Type til að sortera tenglana hérna á síðunni. Eini gallinn er sá að MTCollate kunni ekki að raða í íslenska stafrófsröð, svo að ég gerði hetjulega tilraun til að læra smá Perl og reyna bæta þeim eiginleika við.
Þrátt fyrir góðra manna hjálp þá lenti allt í klessu hjá mér (þó að úr yrði smáforrit sem skrifaði út íslenskt stafróf) og ég var farinn að örvænta þegar mér datt í hug að hafa samband við manninn sem skrifaði MTCollate, Stepan Riha. Hann viðurkenndi að MTCollate kynni ekki að raða samkvæmt stafrófum en hafði samband við mig nokkrum klukkutímum seinna og bauð mér að prófa nýja útgáfu sem gæti það, og núna er hann búinn að gefa út útgáfu 1.1 sem kann raða eftir hinum ýmsustu stafrófum.
Forritunarnördar eru kúl.