20. júní 2004

Styrkar hendur kvikmyndatökumannsins

Fade in.

Inni. Fyrirlestrarsalur á sjúkrahúsi. Dagur.

Inni í litlum fyrirlestrarsal er búið að útbúa litla skólastofu. Á vegg er búið að líma blað sem á stendur "Medical conference 2002 - Hand surgery workshop". Við skólaborð hér og þar um herbergið eru læknar í læknafötum að koma sér fyrir. Flestir eru með möppur og glósubækur, og á borðunum hjá hverjum og einum eru litlir bögglar, vafðir inn í plast. Við töflu og myndvarpa stendur amerískur PRÓFESSOR, þunnhærður og snyrtilegur, klæddur í skurðlæknaföt. Hann er að gera sig kláran.

PRÓFESSOR:
(Með sterkum bandarískum hreim)
So, is everyone here? I´ll start then. In my work as both a professor of hand surgery and practicing hand surgeon I have seen multiple types of injuries...

Hann er truflaður í miðju kafi við það að hurðinni er hrundið upp og JÓSI, slöttólfslegur kamerumaður gengur inn. Hann er klæddur í fáránlega múnderingu fréttakamerumanns. Í eyranu er handfrjáls búnaður fyrir farsíma, um sig miðjan er hann með vesti með ótal vösum og krókum fyrir ýmis tæki og tól, og í beltinu hangir vasahnífur og vasaljós. Í hægri hendi heldur JÓSI á stórri tökuvél og hann dregur enn stærri þrífót á eftir sér með vinstri hendi.
Jósi gengur ákveðið með tækin að bakveggnum í herberginu. Hann verður að skáskjóta sér framhjá öllum læknunum og nær að trufla næstum hverja einustu manneskju í herberginu við það.

JÓSI:
Excuse me, afsakið, fyrirgefið...

JÓSI kemst loks fyrir aftan öll skólaborðin og kemur sér og tækjunum fyrir. Hann hysjar upp um sig buxurnar og brosir töffaralega til allra læknanna í salnum sem stara á hann.

PRÓFESSOR:
Well, as I was saying there are multiple types of injuries. As you can see in this picture...

Hann slekkur ljósin og kallar fram á myndvarpann frekar ógeðslega mynd af hendi sem er nær skorin í tvennt

PRÓFESSOR:
(frh.)
...when you treat these types of massive injuries it´s important to be careful to not sever the ulnar and radial nerves that pass through the carpal tunnel and then radiate through the left and right parts of the hand, respectively. In this case the radial...

JÓSI lyftir aðeins brúnum þegar myndin birtist.

JÓSI:
(V.O.)
Jahérna, þetta er brútal mynd. Ég er viss um að hún verður ekki notuð þegar þessi frétt verður klippt saman. Ég kippi mér samt ekkert upp við svona, ég hef séð svo margar hryllingsmyndir að ég orðinn nógu harður til að svona hafi engin áhrif á mig.
En mikið óttalega er leiðinlegt fyrir leikmann að hlusta á þennan fyrirlestur.
cut to:

Inni. Fyrirlestrarsalur á sjúkrahúsi. Síðar sama dag.

JÓSI er hálfdottandi við myndavélina á meðan þægilegt malið í PRÓFESSORNUM heldur áfram í bakgrunninum.

PRÓFESSOR:
...and that concludes the lecture part of this workshop.

PRÓFESSORINN fer og kveikir ljósin. JÓSI rumskar við það og lítur í kringum sig.

PRÓFESSOR:
And now we come to the physical part. Please open your packages and start working. I will walk around and assist you.
JÓSI:
(V.O.)
Hvað er núna í gangi? Og hvað er í þessum plastpokabögglum á borðunum? Best að mynda þetta allt saman...

Fólkið sem situr við borðin setur upp latexhanska og opnar bögglana. Í ljós kemur að inni í þeim eru mannshendur, skornar af ofan við úlnlið. Læknarnir draga upp skurðarhnífa og skera hendurnar upp til að skoða legu tauga, sina og vöðva. JÓSI starir í forundran á og tekur myndir. Hann fölnar sífellt.

JÓSI:
(V.O.)
Úff, þetta er ógeðslegt. Ég verð nú samt að sinna vinnunni og mynda þetta.

Á borðinu við hliðina á JÓSA er verið að opna netta kvenmannshönd. JÓSI starir á hana og tekur eftir löngum nöglum sem virðast vera með leifar af naglalakki.JÓSI lokar augunum.

Cut to:

Inni. Sjúkrahúsherbergi. Kvöld.

GÖMUL KONA sem greinilega er að liggja banaleguna setur á sig naglalakk.

Cut to:

Inni. Fyrirlestrarsalur á sjúkrahúsi. Í framhaldi af fyrri senu.

JÓSI opnar augun. Hann er orðinn náfölur. Hann tekur saman græjurnar sínar og fer. Á einu borðinu sem hann labbar framhjá er búið að fjarlægja alla húðina og mestallt holdið úr einum lófanum svo að sinarnar liggja berar. LÆKNIR MEÐ YFIRVARASKEGG sem hefur skorið þá hönd upp hnippir í sætisnaut sinn og sýnir honum hvernig hann getur látið höndina hreyfa löngutöngina með því að toga í viðkomandi sin. Hann flissar mikið að því um leið og JÓSI gengur út úr herberginu.

Fade out.
Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)