20. ágúst 2003

Það er þörf á Gunnari í Krossinum

Ég hef nýverið varla getað annað en pælt í tölvuveirum, næstum allir sem nota tölvur og internet hafa orðið varir við faraldur síðustu daga (1, 2, 3). Mér var að detta í hug einn maður sem gæti hjálpað okkur við að minnka hættuna á að þetta endurtaki sig:

Gunnar í Krossinum.

Pæliði aðeins í því.

Auðveldasta leiðin til að losna við þessar hvimleiðu tölvuveirur er sú sem ég nota heima hjá mér; Ekki nota vörur frá Microsoft. Ég fæ enga veirusýkingu í mína tölvu vegna þess að langflestar veirur leggjast bara á windows. Þeir sem nota windows eru þessvegna í áhættuhóp vegna lífstíls síns.

Hommar voru einu sinni aðaláhættuhópurinn gagnvart annari og mun hættulegri veiru, eyðniveirunni. Gunnar í Krossinum ákvað af sinni alkunnu góðmennsku að réttast væri að af-homma þessa menn. Hann hefur sagt að það hafi virkað hjá sér og að hann hafi náð að af-homma nokkra, og þá má draga þá ályktun að þá væru þeir svo sannarlega í minni hættu að smitast af eyðni.

Fyrst að Gunnar býr yfir þessari tækni þá ættum við að fá hann til að aðlaga hana að núverandi ástandi; það þarf að af-Windowsa fólk. Þannig myndi grundvellinum fyrir töluveirusýkingum vera eytt.

Þú sem þetta lest: Ef þú notar Windows, hættu því. Láttu okkur af-Windowsa þig. Það er til annar og heilbrigðari lífstíll, bæði fyrir þig og þína tölvu. Prófaðu t.d. Linux eða Macintosh.

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)