← Eldri
(Ég er að verða þrítugur)
Heim Yngri →
(Farinn í bústað)
19. júní 2006

Þrítugur

josi20.jpg
Greinarhöfundur um tvítugt.
Í gær varð ég þrítugur. Ég hélt upp á þetta um helgina, að kvöldi 17. júní hélt ég upp á afmælið með vinapakkinu mínu á Rósenberg. Krakkarnir slógu saman í iPod ostakörfu handa mér. Ég á skemmtilega vini! Nú get ég farið á klóið og haldið áfram að hlusta á tónlist í leiðinni, alveg eins og eftir að ég fékk vasadiskó í jólagjöf 1985 og gat farið um allt og hlustað á Bon Jovi kassettuna mína -a.m.k. þar til batteríin fóru að klárast og allt varð mjööööög hæææææægt. Ef ég svara ekki fólki næstu vikur, athugið þá fyrst hvort ég sé með hvít heyrnartól í eyrunum ;-)
Ingvar Valgeirs hringdi og óskaði mér til hamingju og sagðist hafa reddað spes gjöf. Hann bað mig um að líta út um gluggann, hann hefði reddað sviði og nokkrum poppurum til að taka lagið mér til heiðurs. Flott gjöf.
Hraun! léku snilldarlega fyrir fólk þarna og ég fékk að taka lagið með þeim, tók Rhinestone Cowboy eftir Glenn Campbell við góðan orðstír og Forever Young eftir Alphaville við, ja, ekki alveg jafn góðan orðstír. Þegar Forever Young var hálfnað brutust út heljarslagsmál fyrir utan gluggann, og einhver var kýldur niður og sparkað í liggjandi. Ætli ég reyni ekki að vanda mig betur við sönginn næst...

Í gær var svo fjölskylduboðið heima hjá pabba og mömmu. Þar gaf fjölskyldan mér örlítið af útivistardóti sem á eftir að virka vel í væntanlegri Hornstrandaferð sem Bragi er að skipuleggja. Systir mín og mágur gáfu mér líka Draumalandið eftir Andra Snæ Magnason. Ég las hana alla í gærkvöldi. Og þar er eftirfarandi klausa frá 1918:

Danmörk tilkynnir erlendum ríkjum að hún hafi samkvæmt efni þessara sambandslaga viðurkennt Ísland fullvalda ríki, og tilkynnir jafnframt, að Ísland lýsi yfir ævarandi hlutleysi sínu og að það hafi engan gunnfána.

Þegar ég las þetta varð mér hugsað til embættisverka síðasta og þarsíðasta forsætisráðherra og ég táraðist. Ég hlýt að vera að meyrna í ellinni.

3 ummæli

Til hamingju ljúflingsdrengurinn minn :D
Það var svo sannarlega gaman að fá að gleðjast með þér á ammælisdaginn.
Og hey, flott að þú ert aftur kominn af stað með bloggið. Var ekki búinn að sjá það... :D
Húrra!!!

Hr. Svavar skrifaði kl. 11:38, 20 júní, 2006

Til hamingju með afmælið Jósi minn. Við erum ömurlegir vinir. Skipuleggjum utanlandsferð á sama tíma og þú átt afmæli. Ég held að við verðum að bæta þér þetta upp með að bjóða þér í einhvern girnilegan mat. Hvað langar þig í?

Kristjana skrifaði kl. 16:20, 30 júní, 2006

Grillaðan geirfugl. Með Dódófuglaeftirrétti.

Nei bíddu...

...Þið misstuð af því eins og afmælinu ;-)


(ég ét annars næstum hvað sem er hjá ykkur, þið hafið alltaf eitthvað gott í matinn)

Jósi skrifaði kl. 16:53, 30 júní, 2006

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)