← Eldri
(Vistaskipti)
Heim Yngri →
(Sirkus)
8. mars 2007

Til Akureyris

Ég er á Akureyri í vinnuferð. Síðan hvenær er komin Húsasmiðja og fokking byggð lengst, lengst, lengst, lengst fyrir utan bæinn!
Þegar ég bjó hérna þá var Glerárþorp okkar Grafarvogsholtsúthverfapleis. Ég ætti kannski að sætta mig við að vera Reykjavíkurborgarbarn þar sem ég hef átt lögheimili fyrir sunnan í 25 ár. Fjandinn hafi það.

4 ummæli

Svona er þetta. Til lukku með Filmus djobbið. Fæ kannski að sitja hjá þér á Vespunni bráðum.... já ? ! ?

Pétur Örn skrifaði kl. 05:25, 23 mars, 2007

Bara svona hypotetískt. Segjum svo að þú farir á Vespunni þinni frá Reykjavík til Rómar til að borða pizzu á Spænsku Tröppunum. Þú tekur túrinn upp, hvaða græjur tekur þú með (cam, mic, etc)? Þarf að rúmast á Vespunni. Þú ætlar að henda út nothæfum snúttum á Netið og DVD, en líka vera með í þannig gæðum að það þolir sjónvarpsútsendingu. Er til eitthvað handí format fyrir svona?

Gisli skrifaði kl. 06:57, 31 mars, 2007

Ja, ég er einmitt að plana langferð á vespunni í sumar með Sony HVR-AE1 vélina mína meðferðis. Ef ég ætti að vera að setja búta á netið jafnóðum myndi ég líka vera með fartölvuna á bakinu og klippa bútana til á hótelherbergjum.

Jósi skrifaði kl. 15:40, 1 apríl, 2007

Jamm, kíkti á notaða Sony PD170, en HVR-A1E lítur ágætlega út. En þetta er fyrst og fremst HDV vél skilst mér - og á víst að vera skárri en þessar gömlu, þriggja chips lausnir. Færð líka 16:9 chip með HVR-A1E, sem er víst sú sama og notuð er í dýrum stafrænum SLR vélum.
Sé líka að það er cmos chip í vélinni,en upplausnin er víst ekki ekki nógu góð samanborið við high end DVCam og DV gæði.

Sony HVR-Z1E er akkúrat helmingi dýrari. Er það bara peningur í klósettið samanborið við HVR-A1E?

Það dáldið mikið um svona þætti hérna í sjónvarpinu a la "Einn gæji á kajakk gegnum Evrópu", "Grái fiðringurinn á Harley eftir Route 66" eða "Sonur nágrannans á reiðhjóli í Síberíu". Dramatúrgían er svona upp og ofan í þessu, en þetta fær þokkalegt áhorf. Hvernig svona dæmi er fjármagnað er mér hins vegar ráðgáta.

Gísli skrifaði kl. 09:16, 2 apríl, 2007

Skrifa ummæli
(Ef þú hefur ekki skrifað ummæli hér áður þá getur verið smábið eftir að eigandi síðunnar fallist á ummæli þín. Þangað til munu þau ekki birtast við greinina. Takk fyrir biðlundina.)

(Kemur hvergi fram opinberlega)
 
   
(Þú getur notað HTML til áhersluauka)