Tölvuspekúleringar.
Ég hef undanfarin ár átt makka og notað með góðum árangri, sérstaklega eftir að nýja stýrikerfið MacOS X kom út, en það var ein aðalástæðan fyrir því að ég fékk mér svona tölvu.
Wintel notendur sem ég þekki hafa þó alla tíð verið með minnimáttarkennd og leiðindi. Geiri 3d vinur minn er sí og æ að senda mér linka á neikvæða hluti um makka, Már þreytist seint á að gagnrýna viðmótið á makkanum og þegar ég var með kommentakerfi hér á síðunni birtist þar eitthvað í líkingu við "Makkar, hahaha!" og linkur eitthvert á einhverja vafasama grein um að makkar væru að deyja. Þetta var óundirritað en rannsóknir mínar leiddu í ljós að þetta var sent frá 213.176.138.13 öðru nafni flow.itn.is. Svavar var að vinna hjá Nýherja (sem á itn.is lénið) þegar þetta var...
Nyjasta nýtt: Svavar sver og sárt við leggur að hann hafi ekki skrifað þetta. Þar sem ég hef ekki auglýst það hér á síðunni að ég noti makka, þá geri ég ráð fyrir því að þetta hafi verið einhver sem ég þekki utan internetsins. Gefðu þig fram!
(að sjálfsögðu bið ég Hr. Muzak innilega afsökunar á að hafa gefið í skyn að hann hafi verið ómálefnalegur)
En þrátt fyrir ómálefnalega gagnrýni wintelhausana er makkinn nú á tímamótum; PowerPC G4 örgjörvinn hefur nú verið í notkun í rúm 3 ár, og ekkert bólar á G5 örgjörvanum. Motorola hefur framleitt örgjörva fyrir Apple frá því að makkarnir skiptu yfir í PowerPC örgjörva en Apple, IBM og Motorola hönnuðu þessa örgjörvafjölskyldu í sameiningu, byggða á power-örgjörvununm frá IBM. Motorola ætlaði að gefa út það sem hefði orðið 64-bita G5 örgjörvi í fyrra, en hefur ekki séð sér hag í að einblína á almenningstölvur; þeir selja mun fleiri örgjörva í stýringar á allskyns raftækjum (t.d. nota allir bílar frá Ford víst PowerPC örgjörva). þetta þýðir að þeir einbeita sér meira að 32-bita örgjörvum með tiltölulega lága klukkutíðni (fá hertz fyrir þá sem skilja það betur). þetta þýðir að makkar hafa dregist aftur úr pc-tölvum í hraða. þó að PowerPC-örgjörvar séu hraðari en Intel/AMD/x86 örgjörvar hertz fyrir hertz þá er munurinn núna orðinn of mikill.
Apple umboðið á íslandi hefur í gegnum árin (þegar það hefur verið í eigu Radíóbúðarinnar, Aco og núna síðast Aco-Tæknivals) gefið út fríar viðbætur við kerfið svo að íslenskir stafir virki. Áður en MacOS X kom út sögðu þeir skælbrosandi að með X kæmi Unicode stafataflan og íslenskustuðningur væri innbyggður í kerfið svo að maður myndi ekki þurfa fá viðbót við kerfið, allt myndi virka beint úr kassanum.
Það eru þrenns konar forrit sem keyra í MacOS X:
- "Classic", forrit gerð fyrir OS 9 og neðar sem keyra undir emulation í OS X. (hvernig þýðir maður emulation?)
- "Carbon", blanda af OS 9 og OS X forritum sem hægt er að keyra án þess að ræsa OS 9 emulation umhverfið.
- "Cocoa", hreinræktuð OS X forrit
Af þessum þremur tegundum eru það bara "Cocoa" forrit sem birta íslenska stafi rétt. Til að laga þetta gaf Apple umboðið út fría viðbót fyrir MacOS X 10.0 og 10.1 en nú þegar 10.2 er komið ætla þeir að græða. íslenskustuðningurinn kostar 9.000 kr. fyrir fólk eins og mig sem hefur keypt stýrikerfið frá útlöndum (vegna þess að biðin eftir því að Apple umboðið fái vörur frá útlöndum er allt of löng).
Vegna þessarar óvissu um örgjörva og nýjustu óánægjunnar með þjónustuna hjá Apple-umboðinu hér á landi þá er ég farinn að spá í hvað framtíðin ber í skauti sér.
PC-tölvu megin eru hreyfingar í gangi, örgjörvaframleiðendur (eins og Intel, AMD og Transmeta) eru að reyna að gera 64 bita útgáfur af x86 örgjörvum.
Til útskýringar: bitaupplýsingar um örgjörva gefa til kynna hvað hann afgreiðir marga bita (núll eða einn) í hverri umferð eða Hertzi, þannig að 64 bita örgjörvi ætti fræðilega séð að vera tvöfalt hraðari en 32 bita örgjörvi sem væri keyrður á sömu klukkutíðni. 64 bita örgjörvar henta vel til notkunar í mínum bransa, t.d. í þrívíddargrafík, klippingu og tæknibrellur.
Intel og AMD eru með mismunandi nálganir á 64 bita tækni. Intel eru búnir að gefa út Itanium, nokkuð flottan örgjörva sem er byggður á alveg nýrri tækni en AMD ætlar að reyna að gera 64-bita útgáfu af x86 örgjörvum dagsins í dag, og Opteron (fyrsti örgjörvinn sem mun nota x86-64 tækni þeirra) mun geta keyrt 32 bita forrit beint (eins og reyndar 64 bita PowerPC örgjörvar) en Windows er nú til í bæði 64 og 32 bita útgáfum (64 bita útgáfan sem keyrir á Itanium keyrir 32 bita forrit í gegnum hugbúnaðar emulation).
Intel virðist ætla að halda áfram að gera 32 bita örgjörva í mörg ár í viðbót, nýlega sýndu þeir 4.7 GHz útgáfu af Pentium 4 en sögðu að vísu ekkert um það hvenær hún færi á almennann markað. Svo virðist vera að Itanium sé gerður fyrir pro notendur sem þurfa öflugar tölvur en Pentium 3 og 4 séu fyrir almenna notendur og venjuleg fyrirtæki.
Framtíðin virðist liggja í 64 bita örgjörvum. Þó að enn verði framleiddir 32 bita örgjörvar fyrir x86 samhæfðar tölvur í nokkur ár þá mun allt enda í 64 bitum. Apple er að sögn að þróa í leynd útgáfu af stýrikerfi sínu sem mun heita Marklar og á að keyra á x86 vélbúnaði. Gallinn er sá að Apple er í raun vélbúnaðarfyrirtæki. Ef að stýrikerfið verður fært yfir á PC-tölvur þá mun Apple missa stjórn á vélbúnaðinum og verða í svipaðri aðstöðu og Be eða OS/2; með flott sýrikerfi sem keyrir bara á sumum móðurborðum og nýtir ekki aðalkost x86 heimsins sem er fjölbreytileiki í vélbúnaði (einn aðalkosturinn við MacOS X er sá að Apple getur vitað með vissu á hvernig vélbúnaði stýrikerfið er keyrt en ef reynt verður að flytja makka yfir í PC-heiminn hverfur sú vissa og um leið fullyrðing Apple um að stýrikerfið "virki bara").
En þrátt fyrir framtíðardrauma er eitthvað rotið í sílikondal. Microsoft, Intel og núna síðast AMD eru að taka þátt í "The Trusted Computing Platform Alliance", samtökum með það göfuga markmið að vernda höfundarrétt, en aðferðirnar eru vafasamar. Þetta virkar þannig að bæði í stýrikerfinu og á örgjörvanum eru tól til að ritskoða það sem maður gerir. Ef maður vill rippa tónlist af geisladiski í mp3 skjöl þá tékkar tölvan á miðlægum þjóni hvort að það megi. Ekki er heldur hægt að spila gögn sem eru merkt einhverjum öðrum. Sumir segja að tölvan muni henda út gögnum sem Palladium (útgáfa Microsoft af þessari tækni) samþykki ekki eða þá að tölvan muni tilkynna yfirvöldum ef maður reyni að afrita varið efni. Stór kvikmyndaver og tónlistarútgáfur eru að reyna að koma því í kring að öll raftæki í bandaríkjunum verði búin svona höfundarréttarvörn. Þetta er orðinn aðeins of mikill stóri bróðir fyrir minn smekk.
Þó að Linux sé ekki komið með Palladium þá þýðir það að þetta er í vélbúnaði að tölvan sjálf mun ekki endilega gera það sem stýrikerfið segir henni! Apple hefur ekkert gefið út um það hvort að makkar muni styðja e.k. útgáfu af Palladium en eins og er þá þykir mér það ólíklegt; Auglýsingar þeirra ganga beinlínis út á það hve auðvelt sé að rippa tónlist.
Sagan segir að Motorola gæti kynnt G5 örgjörvann í tæka tíð fyrir Macworld sýninguna í janúar, en þá segir hefðin að Apple muni kynna nýjan vélbúnað. Meira spennandi er þó að IBM er að þróa útgáfu af 64-bita Power4 örgjörva sínum fyrir borðtölvur, með stuðningi fyrir vektorareikninga sem virðist vera samhæft við Velocity Engine sem skiptir mjög miklu máli í nútímsmökkum. Ef að þessir örgjörvar verða notaðir í makka framtíðarinnar þá mun hraðamunurinn aukast mjög, PC-tölvum í óhag.
Þegar fjárhagur minn mun loks leyfa mér að kaupa nýja tölvu mun ég skoða PC-tölvur, og þá hvort Linux verði ekki í vandræðum með Palladium-vélbúnað (ég vil helst ekki nota stýrikerfi frá Microsoft) eða kannski verða þeir hjá Apple komnir með samkeppnishæfa örgjörva. Sjáum til eftir svona ár.