Trackback
Þar sem einhverjir virðast vera farnir að nota Tracback er ég búinn að kveikja á því hjá mér. Að vísu virðist það bara virka fyrir færslur sem eru settar inn eftir að ég kveikti á þessu.
Ég er samt svolítið skeptískur á þetta, því að trackback leyfir faktíst öðrum að breyta síðunum mínum (þó að sú breyting sé bara að bæta inn einum link) þannig að mér dettur í hug að þetta geti gert mann opinn fyrir denial-of-service árásum, þ.e. einhver gæti gert klaka.net voða upptekinn við að uppfæra trackbackið mitt.
Hér er góð útskýring á trackback fyrir byrjendur.