Valentínusardags - eiturlyfjasalinn
Fade in
Inni. Ríkulega skreytt íbúð. Kvöld.
Við erum stödd í íbúð þar sem partý í tilefni valentínusardags fer fram. Allt er skreytt með bleikum borðum og gestir eru að drekka bleika bollu. Í skál á borði er hjartalaga valentínusarnammi að bandarískum sið. JÓSI, 26 ára gamall kvikmyndagerðarmaður, klæddur í sín væmnustu föt situr við borðið.
JÓSI:
Hey, þetta er svona hjartalagað nammi með áletrunum eins og kanarnir gefa hvor öðrum á valentínusardaginn. Best að prófa þetta hérna sem á stendur "My Love".
JÓSI stingur molanum upp í sig og grettir sig.
JÓSI:
Ojj, þetta er eins og tannkrem, eða tyggjó komið fram yfir síðasta söludag á bragðið. Það er svo sannarlega sælla að gefa en þiggja þetta nammi. Það verður ábyggilega gaman að gefa öllum sem ég hitti í kvöld svona, hver myndi t.d. ekki vilja fá nammi með áletruninni "Nice Girl".
JÓSI tekur lúku af hjartalaga nammimolum og stingur í vasann.
Dissolve to:
Úti. Austurstræti. Síðar þetta sama kvöld.
Gestir í biðröð skyndibitastaðar stara forviða á JÓSA gefa KUNNINGJUM sínum hjartalaga nammimola. Talsvert er lagt af lögreglubílum á gangstéttar í kring vegna þess að búið er að brjóta rúðu á skemmtistað.
JÓSI:
(væminni röddu)
...og hérna fáið þið síðustu nammimolana strákar. Gleðilegan valentínusardag!
KUNNINGJARNIR hlæja hrossahlátri og halda áfram sína leið. JÓSI tekur sér stöðu í biðröðinni en tekur þá eftir SÆTRI STELPU labba framhjá og hóar í hana.
JÓSI:
Sæl, vorum við ekki saman í skóla fyrir nokkrum árum?
SÆT STELPA:
Jú, hvað segiru gott?
JÓSI:
Allt fínt, ég var að gefa fólki svona hjartalaga valentínusardagsnammi en virðist vera búinn með molana svo ég get ekki gefið þér einn, því miður.
SÆT STELPA:
Það er allt í lagi, ég held ekki mikið upp á valentínusardaginn, þetta er nú varla íslensk hátíð...
Allt í einu grípur stór hendi í JÓSA og kippir honum úr röðinni. Um er að ræða FÍLEFLDAN KARLMANN, talsvert stærri en JÓSA og horfir hann ábúðarfullur á JÓSA.
FÍLEFLDUR KARLMAÐUR:
Sæll. Lögreglan. Mér var bent á þig í sambandi við eiturlyf. Veistu eitthvað um það.
JÓSI:
(hlæjandi)
Ha, ertu ekki að grínast. hehe.
FÍLEFLDUR KARLMAÐUR:
(þungbúinn á svip)
Þetta er ekkert grín.
JÓSI:
Ertu í alvörunni í lögreglunni?
FÍLEFLDI KARLMAÐURINN dregur upp lögregluskilríki og sýnir JÓSA.
JÓSI:
(frekar hissa, hlæjandi vandræðalega)
Hehe, ég var sko í valentínusarpartýi...
FÍLEFLDI KARLMAÐURINN ygglir brúnir.
JÓSI:
...og þar var svona hjartalaga nammi, skiluru, að bandarískum sið...
JÓSI:
(orðinn örvæntingarfullur, talar hratt)
...og hérna, ég tók lúku af þessu og er búinn að vera að gefa fólki í tilefni dagsins og einhver getur hafa haldið þetta vera einhverskonar eiturlyfjapillur. Ég er samt búinn með nammið núna svo ég get ekki sýnt þér þetta en ef þú vilt þá getum við farið aftur í valentínusarnammið, nei ég meina valentínusarpartýið, það er ábyggilega ennþá svona nammi þar. Þetta var nú bara gert í tilefni dagsins, ástin og svona, þurfið þið lögreglumenn ekki líka ást?
JÓSI horfir vandræðalega á FÍLEFLDA KARLMANNINN sem yppir öxlum.
FÍLEFLDI KARLMAÐURINN:
Jæja, ég held að við þurfum ekki að aðhafast neitt frekar í þessu máli. Þú mátt fara.
JÓSI varpar öndinni léttar og fer að leita að SÆTU STELPUNNI.
Fade out.