Vefarinn Jósi
Upp á síðkastið er búið að vera nóg að gera hjá mér við að setja upp Movable Type fyrir fólk sem ég þekki. Siggi Palli, Dóra og Bragi eru öll búin að fara í meðferð hjá mér og stefnir í fleiri bráðlega.
Það er bara einn galli við blogg sem eru flutt af blogspot.com að það er frekar stirt að stilla blogspot bloggin á að hoppa strax yfir á nýju síðurnar. Gott dæmi er gamla síðan hans Braga, en helst vildi ég nota eftirfarandi kóða til að láta hana fara sjálfkrafa á nýju síðuna, en Blogger meikaði ekki nýtt template.
<head>
<meta http-equiv=Refresh content="0; URL=http://bragi.klaki.net/">
</head>
Það er merkilegt að þó að blogger leyfi ekki að breyta template-inu þá er samt hægt að setja inn venjulegar bloggfærslur. Ég náði þannig að hakka mér leið fram hjá þessu með því að setja inn eftirfarandi iframekóða með nýju síðunni á gömlu síðuna
<iframe name="I1" marginwidth="5" marginheight="5" height="100%" width="100%" border="0" frameborder="0" src="http://bragi.klaki.net">
Og bætti svo inn eftirfarandi javakóða á nýju síðuna sem brýtur henni leið út úr iframe glugganum.
<script language=javascript type="text/javascript">
<!--
// Escape Framing
// Script by Zimetra ApS: http://www.artemis.dk/js-escape-framing/
if (parent.frames.length) {
top.location.replace(document.location);
}
// -->
</script>
Þetta er samt frekar subbuleg aðferð (sem er ekki víst að virki í öllum tölvum) og ef einhver kann snyrtilegri leið að þessu þá væri það vel þegið.