Vistaskipti
Jæja. Ég er kominn með fasta vinnu eftir nokkra ára freelance hark (stundum meira free heldur en lance, haha). Ég er sumsé farinn að vinna hjá fyrirtækinu Filmus.
Ef smellt er þar á "the company" má sjá að ég er víst orðinn fastur þar.
Ég var mjög ánægður að geta labbað í vinnuna en skömmu eftir að ég byrjaði fékk ég að vita að verkefni sem ég er að fara að vinna í næstu 3 mánuði muni vera unnið inni í Vatnagörðum. Fjandinn. Best að draga fram vespuna...
ps. TIl hamingju Gríma og Ásgeir með strákinn sem fæddist í dag!
Leitin verður klassi, getur allavega ekki verið verri en síðasta leit :)
3D skrifaði kl. 06:35, 3 mars, 2007